Flytur út þekkingu um öryggi barna Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 29. apríl 2016 07:00 Herdís Storgaard, sem er lengst til hægri, er hér á fundi með foreldrum í grunnskóla í Brasov í Rúmeníu.
Herdís Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna, er farin að flytja út þekkingu á sviði öryggis barna. Fjöldi gesta víðsvegar að úr heiminum hefur heimsótt miðstöðina og sjálf hefur hún farið víða til að veita faglega ráðgjöf. Herdís var á dögunum að koma úr fimmtu fræðsluferð sinni til Rúmeníu. „Sem aðildarríki að Evrópusambandinu þarf Rúmenía að uppfylla ýmsar kröfur og hefur fengið veglega styrki til þess. Sameiginlegt verkefni Íslands, Noregs og Liechtenstein styrkir lönd sem eru að taka á sínum málum með allt sem snýr að fólki og var mér boðið að kynna mitt verkefni og starf til fjölda ára. Markmiðið er að auka öryggi í öllum grunnskólum Rúmeníu,“ greinir Herdís frá.Sameiginlegt verkefni Íslands, Noregs og Liechtenstein styrkir lönd sem eru að taka á sínum málum með allt sem snýr að fólki og var mér boðið að kynna mitt verkefni og starf til fjölda ára. Herdís Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barnaYfirvöld í Brasov ákváðu að gera einn grunnskóla borgarinnar að fyrirmyndarskóla varðandi öryggi barna sem starfsmenn annarra grunnskóla landsins myndu læra af. „Ég þjálfaði alla kennarana þar og leiðbeinendur sem gætu haldið þjálfuninni áfram fyrir aðra skóla. Ég gerði verkferla og kenndi áhættumat og er nú að leggja lokahönd á handbók. Í henni verður sérstakur kafli um samskipti skóla og foreldra en þau hafa verið vandamál í Rúmeníu. Þegar heragi ríkir ekki lengur kunna menn kannski ekki alveg að fara með frjálsræðið. Starfsmenn skólanna þurfa meðal annars að ræða við foreldra um mataræði, svefn og hreyfingu barna. Ráðgert er að kennarar verði með námskeið fyrir foreldra þegar börn byrja í grunnskóla og að foreldrarnir fái skriflegar leiðbeiningar.“ Herdís segir fulltrúa foreldrafélaga í Brasov hafa heimsótt samtök foreldrafélaga á Íslandi og einnig íslenska skóla. „Fólkið er mjög áhugasamt og það hefur verið auðvelt að vinna með því. Allt er gert af mikilli alúð.“ Það eru ekki bara stjórnvöld í Rúmeníu sem hafa beðið Herdísi um að miðla af þekkingu sinni heldur einnig stjórnvöld í Jórdaníu. Hún er auk þess í samstarfi við félagasamtök á Grænlandi. Miðstöð slysavarna barna er eingöngu rekin með styrkjum frá IKEA og Sjóvá. Námskeiðin þar eru foreldrum að kostnaðarlausu.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 29. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira