Fjærsýni Jón Páll Hreinsson skrifar 6. október 2016 07:00 Undanfarið hefur farið fram kröftug umræða um eldisuppbyggingu á Vestfjörðum í fjölmiðlum landsins. Sem betur fer. Umræðan hefur öðru fremur verið á forsendum náttúru og lífríkis, vernd og skynsemi hafa verið þar í forgrunni. Þar hafa menn tínt margt til í sínum rökfærslum, sumt gott, annað ekki eins gott. Eins og gengur. Það sem mér hefur fundist erfitt í umræðunni er að hún er oft á tíðum máluð of sterkum litum. Ég fæ oft á tilfinninguna að ef ég mæli með fiskeldi sé ég á móti stangveiði og náttúruvernd og að stangveiðimenn þurfi sjálfkrafa að vera á móti fiskeldi. Þetta er hvimleitt því það er mér jafn mikilvægt að njóta hinnar fallegu náttúru Íslands, þ.m.t. stangveiði, sem ég geri ríkulega ár hvert, og það er mikilvægt fyrir mig að mannlíf og samfélag eflist með tilkomu fiskeldis á Vestfjörðum. Nú síðast reit Magnús Guðmundsson hugleiðingu í Fréttablaðið undir yfirskriftinni Skammsýni. Fyrst skal honum þakkað fyrir innleggið. Það er mikilvægt fyrir alla sem að þessu máli koma að öll sjónarmið komi fram og ég efast ekki um að þetta sé Magnúsi hjartans mál, þótt mig gruni að okkar hagsmunir séu ekki þeir sömu. Þar rekur Magnús með nokkuð dramatískum hætti hvaða afleiðingar það geti haft að hefja sjóeldi í Ísafjarðardjúpi. Þar tínir hann til nokkuð algeng rök sem jafnan eru notuð gegn fiskeldi eins og viðkvæma náttúru, verndun villtra laxastofna, og aðför gegn arðbærri atvinnugrein, stangveiði. Ágætis yfirreið hjá Magnúsi. En mig langar að benda á eitt. Umhverfismatið. Hið lögformlega ferli, aðferð á forsendum vísindanna til að leiða fram hlutlaust mat á hvort uppbygging sjóeldis hafi of skaðleg áhrif á umhverfi sitt til að hægt sé að leyfa það. Umhverfismat segir okkur m.a. á faglegan, vísindalegan og hlutlausan hátt hvort áhrif á náttúruna séu of mikil, hvort annað lífríki skaðist og hvort sjóeldi geti mögulega skaðað aðra stofna, svo sem villta laxastofna svo fátt eitt sé nefnt. Nú síðast kláraðist umhverfismat vegna eldisstækkunar í Patreksfirði og Tálknafirði, upp í 17 þús. tonn. Skipulagsstofnun samþykkti umhverfismatið í áliti sínu frá 23. september sl. Það má segja að öllum vangaveltum Magnúsar sé svarað í umræddu mati, á hlutlausan og faglegan hátt. Skipulagsstofnun tekur fram í áliti sínu að að mörgu sé að hyggja í umræddri eldisframleiðslu og ekki allt jákvætt. En samandregin niðurstaða er að neikvæð áhrif af sjóeldi séu óveruleg og að öllu afturkræf: Mengun sé staðbundin og afturkræf og gangi að öllu leyti til baka á hvíldartíma eldissvæða. Áhrif sjúkdóma séu lítil og lítil áhætta sé á að villtir laxfiskar skaðist vegna eldis. Áhrif eldis á genamengi villtra laxastofna eru talin lítil og óveruleg.Náttúran njóti vafans Þetta segir okkur að viðkvæm náttúra fær að njóta vafans. Litlar líkur eru á að villtir laxastofnar spillist og arðbærum atvinnurekstri veiðiréttarhafa sé ógnað. Það þýðir hins vegar ekki að björninn sé unninn. Í áliti Skipulagsstofnunar er gerð rík krafa til fiskeldisfyrirtækjanna um vinnubrögð og umgengni við náttúruna. Gerð er rík krafa um að fyrirtækin fylgi ströngustu stöðlum í greininni og eftirlit verður virkt og strangt. Virðing og verndun náttúrunnar byggist á umgengni okkar um hana. Við sem búum og nýtum náttúruna hér á Vestfjörðum gerum þá kröfu að fiskeldisfyrirtækin umgangist þessa auðlind af virðingu og alvöru. Við treystum þeim fyrir þessu og það er þeirra að standast traust okkar. Ef það er gert, mun náttúran njóta vafans. Það eru á að giska 15 ár síðan Vestfirðingar ákváðu í sameiningu að fjórðungurinn skyldi vera stóriðjulaus. Það var gert á Fjórðungsþingi Vestfirðinga, samþykkt samhljóða. Samþykktin lifir enn og sannfæring Vestfirðinga er jafn sterk. Við berum virðingu fyrir náttúrunni og viljum að hún njóti vafans. Við þekkjum hvernig það er að lifa af gjöfum náttúrunnar og höfum gert það í þúsund ár. Það hefur verið takmark okkar allan þann tíma að nýta okkur gjafir náttúrunnar til að efla mannlíf og samfélag í byggðum Vestfjarða og það er enn okkar takmark. Það er óumdeilt að fiskeldi mun efla og styrkja byggðir á Vestfjörðum eins og dæmin sanna. Það viljum við gera áfram með því að vinna saman með eldisfyrirtækjunum með hagsmuni náttúrunnar að leiðarljósi. Við Magnús vil ég segja eitt að lokum. Ég veit ekkert skemmtilegra en að setja í nýgenginn íslenskan lax í fallegri á. Ég ætla að gera það áfram eins lengi og ég hef heilsu til og áhuga á. Kannski hittumst við einhvern tíma á bakkanum og getum þá rætt eldismálin á opinn og hreinskiptinn máta. Ég ber virðingu fyrir hagsmunum stangveiðimanna og veiðiréttarhafa, en hagsmunirnir mega ekki bera skynsamlega og hófstillta umræðu ofurliði. Það væri skammsýni.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins skrifar Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson skrifar Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal skrifar Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Jafnréttisstofa í 25 ár: Er þetta ekki komið? Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Hvar er textinn? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Berklar, Krakk og Rough Sleep Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Blóðugar afleiðingar lyga Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hinsegin samfélagið á heimili í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhrif Vesturlanda og vöxtur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Alvöru fjárlög fyrir venjulegt fólk Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafa börn frjálsan vilja? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvers vegna halda Íslendingar með Dönum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað varð um þinn minnsta bróður? Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til að verða bergnuminn Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Þriðja leiðin í námsmati stuðlar að snemmtækri íhlutun Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna Alma D. Möller skrifar Skoðun Hækkun skrásetningargjalds – Segjum sannleikann Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar Skoðun Hvaða módel ertu? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Tilgáta um brjálsemi þjóðarleiðtoga Gunnar Björgvinsson skrifar Sjá meira
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun
Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar
Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar
Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun