Ummæli um vafasama starfsemi gjaldkera „í meginatriðum sönn“ Bjarki Ármannsson skrifar 17. mars 2016 16:57 Hæstiréttur sýknaði í dag fyrrverandi formann Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur af kröfum fyrrverandi gjaldkera félagsins. Vísir/Vilhelm
Hæstiréttur sýknaði í dag fyrrverandi formann Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur af kröfum fyrrverandi gjaldkera félagsins, sem krafðist ómerkingar ummæla sem formaðurinn fyrrverandi hafði haft uppi og fór fram á miskabætur. Formaðurinn dreifði til félagsmanna á aðalfundi félagsins árið 2013 blaði þar sem störf gjaldkerans voru gagnrýnd. Ummælin sem gjaldkerinn fór fram á að yrðu ómerkt sneru að útdeilingu fjármuna félagsins. Sagði þar meðal annars að eiginkona og bróðir gjaldkerans hefðu þegið háa styrki úr sjóðum félagsins á liðnu ári og að endurskoðandi segði að fjármunir félagsins hefðu verið notaðir til kaupa án þess að fram kæmi hvort kaupin tengdust starfsemi félagsins. Bæði Héraðsdómur Reykjaness og Hæstiréttur féllust á það með formanninum að það sem fram hefði komið á blaðinu væri í meginatriðum satt. Ummælin byggðu á bréfum löggilts endurskoðanda félagsins og gögnum úr bókhaldi þess. Taldi Hæstiréttur að á formanninum hefði hvílt sú skylda að hafa eftirlit með starfsemi félagsins og upplýsa félagsmenn um hugsanleg brot eða mistök í starfi þess. Formaðurinn var því sýknaður af öllum kröfum gjaldkerans og var gjaldkeranum gert að greiða 750 þúsund krónur í málskostnað. Hann hafði farið fram á eina milljón króna í miskabætur og hálfa milljón til viðbótar til að standa straum af kostnaði við það að láta birta dóminn í nokkrum helstu fjölmiðlum landsins.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Fleiri fréttir Breytingarnar haft verulegt rask á heilbrigðiseftirlit Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Sjá meira