Fimmtán ára baráttu Argentínumanna við kröfuhafa að ljúka Atli Ísleifsson skrifar 31. mars 2016 08:47 Samþykkt þingsins er talin mikill sigur fyrir Mauricio Macri Argentínuforseta. Vísir/AFP
Argentínska þingið hefur samþykkt samning Mauricio Macri, forseta Argentínu, um endurgreiðslur við erlendra kröfuhafa. Því sér loks fyrir endann á fimmtán ára baráttu samningsaðila. Deilur um skuldir Argentínu hafa takmarkað aðgengi argentínska ríkisins að erlendu lánsfé og hamlað viðskipti í landinu. Samningurinn er gerður við kröfuhafa í New York, en deilurnar má rekja til þess að Argentína gat ekki staðið skil á 100 milljarða Bandaríkjadala láni árið 2001. Samningurinn um endurgreiðslur voru loks samþykktar í efri deild argentínska þingsins í gær eftir maraþonfund. Macri forseti varaði þingmenn við að ef samningurinn yrði ekki samþykktur myndu þeir dæma Argentínu til áframhaldandi útskúfunar á erlendum mörkuðum. Samþykkt þingsins er talin vera mikill sigur fyrir Macri forseta sem samdi við kröfuhafa í kjölfar sigurs síns í forsetakosningum landsins í nóvember. Stjórn fyrrverandi forseta, Cristina Fernandez de Kirchner, hafði neitað að semja við kröfuhafa sem hún kallaði „hrægammasjóði“. Í frétt BBC segir að samningurinn feli meðal annars í sér 4,7 milljarða Bandaríkjadala greiðslu til þeirra sjóða sem kærðu argentínska ríkið fyrir bandarískum dómstólum vegna vanefnda. 54 þingmenn efri deildar þingsins samþykktu samninginn, en sextán greiddu atkvæði gegn honum. Áður hafði neðri deild þingsins samþykkt samninginn með 165 atkvæðum gegn 86.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira