Fjarlægur draumur frumkvöðlanna Birta Björnsdóttir skrifar 22. apríl 2016 20:00
Áformað er að reisa 2,730 fermetra nýbyggingar sem tegngjast rúmlega 800 fermetra húsnæði sem fyrir er á meðfarðarstöð SÁÁ á Vík á Kjalarnesi. „Með því verður öll starfsemi SÁÁ í fyrsta skipti í okkar eigin húsnæði," segir Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ. Á nýrri Vík verður hægt að hýsa 61 sjúkling í meðferð í framhaldi af dvöl á sjúkrahúsinu Vogi. Í karlaálmu verða 40 einsmannsherbergi og 21 einsmannsherbergi í kvennaálmu. Átta herbergi verða sérstaklega útbúin með tilliti til aðgengis fyrir fatlaða. Ekki er um það að ræða umfang meðferðar á vegum SÁÁ verði aukið með nýju meðferðarstöðinni á Vík. Um leið og hún verður tekin í notkun mun SÁÁ hætta starfsemi á Staðarfelli í Dölum. Áætlaður byggingakostnaður við framkvæmdirnar er um 920 milljónir króna en endanlegt kostnaðarverð er háð útboðum. Þá liggja samningar um fjármögnun fyrir, samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ. Forseti Íslands hóf framkvæmdina formlega með fyrstu skóflustungunni í dag. „Ég hef stutt SÁÁ mjög lengi og ég tel að starfsemi þess hafi komið þúsundum Íslendinga til bjargar. SÁÁ er líka vitnisburður um hvernig samtakamáttur almennings getur lyft grettistaki. Með þessum framkvæmdum hér er SÁÁ komin með alla sína starfsemi í eigið húsnæði og það hefði frumkvöðlunum eflaust þótt fjarlægur draumur," sagði Ólafur Ragnar. Aðspurður um hvort hann hafi fylgst mikið með umræðunni í kjöflar þess að hann ákvað að gefa aftur kost á sér til embættis forseta Íslands og hvernig kosningabaráttu hans yrði háttað, sagði Ólafur Ragnar; „Ég fylgist nú kannski ekki mjög mikið með henni en þó nokkuð. Ég er auðvitað ennþá í margvíslegum verkum sem tengjast mínum daglegu önnum og hef nú ekkert leitt hugann að því hvenær ég formlega byrja það sem menn kalla kosningabaráttu. Síðast byrjaði ég ekki fyrr en upp úr miðjum maí svo það er þónokkuð í það ennþá."
Mest lesið Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Innlent Fleiri fréttir Sögulegur „köngulóavefur“, troðningur á tónleikum og stemning á degi sjómanna „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Sjá meira