Jákvæð afkoma hjá Kópavogsbæ 2015 Sæunn Gísladóttir skrifar 22. apríl 2016 14:26 Íbúar Kópavogs voru þann 1. desember 34.105 og fjölgaði um 1.010 frá fyrra ári eða um 3,1 prósent. Vísir/GVA
Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar nam 161 milljón króna árið 2015. Þá lækkaði skuldahlutfall bæjarins í 162,5 prósent á árinu, sem er ívið meiri lækkun en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Niðurstaðan er góð í ljósi mikilla launahækkana og stóraukins framlags til lífeyrisskuldbindinga í kjölfar kjarasamninga síðasta árs. Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 sem verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs þriðjudaginn 26. apríl. Fram kemur í ársreikningi að gert var ráð fyrir 398 milljón króna rekstrarafgangi samstæðunnar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015, en niðurstaðan varð 161 milljón króna afgangur. Þá varð rekstrarniðurstaða A-hluta neikvæð um 222 milljónir en en gert hafði verið ráð fyrir 147 milljón króna afgangi. Laun og launatengd gjöld námu í heild alls 12.868 milljónum króna. Það er 5,5 prósent yfir því sem áætlað var. Framlag til lífeyrisskuldbindinga sveitarfélagsins voru tæplega 470 milljónir króna, sem er um 288 milljónum króna umfram áætlun. Heildarfjöldi starfsmanna hjá sveitarfélaginu var 2.933 í árslok 2015 en meðal stöðugildi á árinu voru 2034. Skuldahlutfall A-hluta er nú tæp 142 prósent en það komst undir 150 prósent í fyrra. Samkvæmt aðlögunaráætlun verður skuldahlufall samstæðu komið undir 150 prósent viðmið árið 2018. Skuldahlutfall samstæðu lækkaði í 162,5 prósent úr 175,2 prósent en það var 242 prósent þegar hæst var árið 2010. Tekjur sveitarfélagsins námu rúmlega 24,6 milljörðum en gert hafði verið ráð fyrir tæplega 24,2 milljörðum í tekjum fyrir A og B-hluta. Eigið fé nam í árslok 2015 tæplega 16 milljörðum króna. Íbúar Kópavogs voru þann 1. desember 34.105 og fjölgaði um 1.010 frá fyrra ári eða um 3,1 prósent.
Tengdar fréttir 500 milljóna halli á rekstri Hafnarfjarðar Heildareignir í lok árs námu samtals 48.480 milljónum króna og hafa þær lækkað um 282 milljónir milli ára. 13. apríl 2016 16:13 Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira
500 milljóna halli á rekstri Hafnarfjarðar Heildareignir í lok árs námu samtals 48.480 milljónum króna og hafa þær lækkað um 282 milljónir milli ára. 13. apríl 2016 16:13