Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með eitt högg í forystu eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer þessa dagana á Jaðarsvelli á Akureyri.
Ólafía Þórunn lék á 70 höggum í dag eða einu höggi undir pari. Hún er einu höggi á undan Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni sem lék fyrstu átján holurnar á pari.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er síðan í þriðja sætinu á einu höggi yfir pari og þar með tveimur höggum á eftir Ólafíu Þórunni.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fékk þrjá fugla á hringnum eða á 2., 5. og 16. holur. Hún fékk síðan skolla á bæði 10. og 15. holu en paraði þrettán holur.
Valdís Þóra Jónsdóttir átti skrautlegan hring en hún fékk fjóra fugla og fjóra skolla. Valdís tapaði tveimur höggum á fyrstu þremur holunum en vann sig til baka. Hún átti síðan mjög góðan endasprett og náði tveimur fuglum á síðustu þremur holunum.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir fékk fugl á fyrstu holu en síðan ekki annan fyrr en á sautjándu holu. Hún fékk þrjá skolla í millitíðinni en náði að para þrettán holur.
Efstu konur eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi:
1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR -1
2. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL Par
3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir,+1
4. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK +3
5. Anna Sólveig Snorradóttir, GK +4
5. Berglind Björnsdóttir, GR +4
7. Helga Kristín Einarsdóttir, GK +5
7. Heiða Guðnadóttir, GM +5
9. Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK +6
9. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR +6
Ólafía Þórunn er efst hjá konunum en á þó bara eitt högg
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Sveindísi var enginn greiði gerður
Fótbolti




Landsliðskonurnar neita að æfa
Fótbolti

Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla
Íslenski boltinn


