Mansalstilfellum fjölgar samhliða auknum ferðamannastraumi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 14. júlí 2016 11:30 Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Pjetur
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir mansalstilfellum hér á landi fjölga samhliða auknum ferðamannastraumi. Mikilvægt sé að opna umræðuna því slíkir glæpir þrífist best í þögninni. „Það eru margvíslegar ástæður fyrir þessari fjölgun. Það er til dæmis aukinn ferðamannastraumur til Íslands, og þá er það helst kynlífsmansal því þar sem eftirspurnin er þar er framboðið," segir Alda Hrönn.Bandaríska utanríkisráðuneytið gaf nýverið út skýrslu þar sem farið er yfir mansal á heimsvísu. Þar kemur fram að Ísland sé áfanga- og viðkomustaður fyrir konur sem hnepptar hafa verið í kynlífsþrælkun sem og fyrir vinnuþræla af báðum kynjum. Alda segir niðurstöður skýrslunnar ekki hafa komið sér á óvart. „Varðandi vinnuþrælkun þá eru auknar framkvæmdir hér, það vantar vinnuafl á landinu og það vantar ódýrt vinnuafl. Það er verið að flytja inn erlent starfsfólk og þá þarf mikið eftirlit. Þannig að það er aukin áhætta," segir hún.Sjá einnig:Ísland sagt áfangastaður kynlífsþræla Tekið er fram í skýrslunni að stjórnvöld hér á landi beiti aðeins lágmarksaðgerðum til þess að bregðast við mansali. Vísað er til þess að undanfarin þrjú ár hafi enginn verið sakfelldur fyrir mansal eða þrælahald og lagt er til að þjálfun og fræðsla lögreglu, saksóknara og dómara verði aukin. Alda segir aukna fræðslu á döfinni, en tekur jafnframt fram að vitundarvakningar sé þörf. „Við þurfum alltaf að standa okkur betur. Önnur lönd hafa verið í herferðum, einkum gegn mansali, og það er eitthvað sem við sjáum fyrir okkur að verði gert hér, vegna þess að mansal þrífst í þögninni. Við þurfum þess vegna að opna umræðuna og fræða fólk og segja því að það sé mögulega mansal eða vændi í næsta húsi þannig að fólk geti haft augun opin og geti þá brugðist við og tilkynnt til lögreglu."
Tengdar fréttir Ísland sagt áfangastaður kynlífsþræla Ísland er áfanga- og viðkomustaður fyrir konur sem hnepptar hafa verið í kynlífsþrælkun sem og fyrir vinnuþræla af báðum kynjum, samkvæmt nýrri skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu. 14. júlí 2016 09:52 Mest lesið „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Parísarhjól sprettur upp við höfnina Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Sjá meira
Ísland sagt áfangastaður kynlífsþræla Ísland er áfanga- og viðkomustaður fyrir konur sem hnepptar hafa verið í kynlífsþrælkun sem og fyrir vinnuþræla af báðum kynjum, samkvæmt nýrri skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu. 14. júlí 2016 09:52