„Það eiga að vera fallvarnir til að tryggja að svona geti ekki gerst“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. ágúst 2016 15:25 Konan hefur verið á gjörgæslu Landspítalans síðan slysið varð en mikil mildi þykir að hún hafi lifað slysið af. vísir/pjetur
Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins segir það liggja fyrir að umgjörð utan um neyðarleið á svölum við atvinnuhúsnæði á Selfoss, þar sem þrítug kona féll niður rúma sex metra á mánudagskvöld, sé ófullnægjandi gagnvart öryggi. Það sé frumniðurstaða rannsóknar eftirlitsins. Konan hefur verið á gjörgæslu Landspítalans síðan slysið varð en mikil mildi þykir að hún hafi lifað slysið af. Bendir allt til þess að hún verði lömuð frá brjósti og niður en hún slasaðist illa á mænu við fallið auk þess að höfuðkúpu- og kinnbeinsbrotna. Hún hefur verið í öndunarvél en þó verið við meðvitund og getað tjáð sig með táknum. „Málið er í rannsókn en það liggur alveg fyrir sú frumniðurstaða að umgjörð utan um þessa neyðarleið er ófullnægjandi gagnvart öryggi. Það er okkar frumniðurstaða,“ segir Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins, í samtali við Vísi. Austurvegur 38 en slysið varð á svölum á bakhlið hússins.Mynd af Já.is Gera kröfu um örugga flóttaleið Vitni urðu að því þegar konan féll en svalirnar eru á þriðju hæð í húsi við Austurveg 38 á Selfossi þar sem Sunnlenska fréttablaðið er með skrifstofur. Konan starfaði sem verktaki hjá blaðinu og var við vinnu. „Flóttaleið af vinnustað er hluti af vinnurýminu. Leiðin á að vera örugg, hvort sem fólk er að fara þangað út í daglegum erindum eða nýta sem flóttaleið,“ segir Eyjólfur. „Við gerum þá kröfu að flóttaleiðin sé örugg og við tæknilega útfærslu sé haft samráð við Eldvarnareftirlitið,“ segir Eyjólfur en eldvarnareftirlit er á forræði sveitarfélaga. „Það eiga að vera fallvarnir til að tryggja að svona geti ekki gerst.“
Tengdar fréttir Alvarlega slösuð eftir fall niður brunastiga á Selfossi Liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. 23. ágúst 2016 17:24 Lömuð frá brjósti eftir sex metra fall við vinnu Kraftaverk þykir að þrítug kona lifði af fall af svölum á Selfossi á mánudagskvöldið. 24. ágúst 2016 11:59 Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira
Alvarlega slösuð eftir fall niður brunastiga á Selfossi Liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. 23. ágúst 2016 17:24
Lömuð frá brjósti eftir sex metra fall við vinnu Kraftaverk þykir að þrítug kona lifði af fall af svölum á Selfossi á mánudagskvöldið. 24. ágúst 2016 11:59