Jón Birgir Gunnarsson ráðinn markaðs- og sölustjóri Skaginn 3X Sæunn Gísladóttir skrifar 25. nóvember 2016 09:57 Jón Birgir Gunnarsson nýr markaðs- og sölustjóri Skaginn 3X. Mynd/Aðsend
Jón Birgir mun leiða þau teymi sem bera ábyrgð á markaðs og sölumálum á vörum og lausnum 3X Technology á Ísafirði sem og Skagans á Akranesi. Jón Birgir mun hafa aðalstarfsstöð á skrifstofum félaganna í Sjávarklasanum í Reykjavík. Fram kemur í tilkynningu að Jón Birgir hafi viðamikla reynslu af samvinnu við matvælavinnslur á alþjóðavettvangi, hann starfaði um átján ára skeið hjá tækjaframleiðandanum Marel, síðast sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðarsviðs. Síðastliðin tvö ár hefur Jón Birgir starfað sem rekstrarstjóri hjá Controlant ehf sem nýtir nettengda hluti og gagnaský til að auka sjálfvirkni í hitastigseftirliti. Jón Birgir lauk MBA námi frá Háskóla Íslands árið 2009, véliðnfræði frá Tækniskóla Íslands 1996 ásamt meistarabréfi í vélsmíði frá sama tíma. Skaginn 3X samanstendur af tveimur félögum sem hafa í tvo áratugi starfað í sveitarfélögum þar sem útgerð og vinnsla eru mikilvægar stoðir. Með góðu samstarfi þar og við önnur hátæknifyrirtæki hafa 3X og Skaginn þróað og framleitt fjölbreyttar vörulínur fyrir matvælavinnslur víða um heim ásamt getu til að hanna og útfæra vinnslulausnir sem auka verðmæti í vinnslu.
Mest lesið Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Vara við aðskotaefni í tei Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira