Tæplega þriðjungi hjartaaðgerða frestað Ásgeir Erlendsson skrifar 12. apríl 2016 19:00
Tæpum þriðjungi allra hjartaaðgerða á Landspítalanum, það sem af er ári, hefur verið frestað vegna plássleysis á gjörgæslu. Forstjóri spítalans segir ægilegt fyrir alla aðila þegar fresta þurfi slíkum aðgerðum og skipulagsleysi sé ekki um að kenna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi var fjallað um Bjarka Má Ólafsson sem átti að fara í hjartaaðgerð á Landspítalanum í gær eftir langa bið en var vísað frá þar sem gjörgæsludeild spítalans var yfirfull. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir það mjög leitt þegar svona gerist. „Okkur þykir það mjög leitt þegar þarf að fresta aðgerðum. Biðtíminn eftir hjartaaðgerðum er ekki talinn í árum heldur í vikum og í mesta lagi mánuðum. Það er alveg ægilegt þegar fólk lendir í því, og aðstandendur, að á síðustu stundu þarf að fresta vegna plássleysis.“ Páll segir að tæpur þriðjungur allra hjartaaðgerða á árinu hafi verið frestað. „Af um það bil 80 hjartaaðgerðum sem settar voru upp hefur þurft að fresta 23. Langflestum þeirra aðgerða hefur verið frestað vegna þess að gjörgæslan er full.“ Í viðtalinu við Bjarka Má í gær kom fram að undirbúningur fyrir aðgerðina hafi verið langt kominn í gærmorgun þegar honum var tjáð að ekkert yrði af henni. Það hafi því verið mikið áfall fyrir hann þegar kom í ljós að hann yrði frá að hverfa. Páll Matthíasson segir skipulagsleysi af hálfu spítalans ekki um að kenna. Staðan á legurýmum á gjörgæslu geti breyst hratt. „Það er reynt í lengstu lög að halda í það og sjá hvort ekki gangi. Svona er þetta stundum. Það er algengast að það sé frestað aðgerðum á mánudögum. Það gengur oft mikið á um helgar, mikið af slysum og gjörgæslurnar oft yfirfullar. Þetta er ekki skipulagsleysi. Þetta er bara einfaldlega þannig að spítalinn er á stundum yfirfullur og mikið álag. Þegar við höfum legurými af skornum skammti þá lendum við í þessu, því miður, og það er ekki ásættanlegt til lengdar.“
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Sjá meira