Haukar skipta út Kana og fá Fógetann úr Hólminum Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. október 2016 20:54 Sherrod Wright spilar aftur í Domino's-deildinni. vísir/stefán
Domino's-deildarlið Hauka tilkynnti á Facebook-síðu félagsins nú undir kvöldið að það er búið að skipta um bandarískan leikmann. Samningi hefur verið rift við Aaron Brown en í hans stað er kominn Sherrod Wright sem spilaði með Snæfelli í fyrra og var gjarnan kallaður Fógetinn í Hólminum. Aaron Brown skoraði 19,7 stig, tók 8,3 fráköst og gaf 2,3 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum þremur sem hann spilaði með Haukum í deildinni en fram kemur í yfirlýsingu Hauka að hann þótti ekki standa undir væntingum. Haukar byrja illa í deildinni en þeir eru aðeins með einn sigur í fyrstu þremur umferðunum. Hafnafjarðarliðið fór alla leið í lokaúrslitin á síðustu leiktíð. Sherrod Wright var magnaður með Snæfelli á síðustu leiktíð en hann var stigahæsti leikmaður deildarinnar með 28,3 stig að meðaltali í leik auk þess sem hann tók níu fráköst og gaf 2,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Skotnýting Fógetans var einnig afburða góð en hann hitti úr 57 prósent skota sinna úr teignum og 37 prósent fyrir utan þriggja stiga línuna. Wright verður frumsýndur í nýrri treyju þegar Haukar taka á móti Íslandsmeisturum KR í fjórðu umferðinni á föstudagskvöldið.
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira