Skiptar skoðanir og ósætti í stjórnarliðinu Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Sæunn Gísladóttir skrifar 7. apríl 2016 07:00 Sár út í forystu Framsóknarflokksins. Vigdís Hauksdóttir segist þó sátt við Lilju Alfreðsdóttur í embætti, hún sé afar fær. vísir/Vilhelm
Ekki var einhugur meðal þingmanna Sjálfstæðisflokksins um tillöguna. Ekki var kosið um tillöguna heldur var hún tilkynnt þingmönnum. „Það voru bara allir kostir slæmir í þessari stöðu, þetta var tillaga formanns og ákvörðun hans. Tíminn verður að leiða það í ljós hversu vel þetta gengur,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir um málið. Um ákvörðunina að halda kosningar í haust segir hún: „Ég sé ekkert að því að hafa kosningar sem fyrst ef þetta er niðurstaða flokksins.“ Guðlaugur Þór segir að þrátt fyrir skiptar skoðanir þá styðji þingflokkurinn ákvörðun Bjarna. „Við fólum Bjarna það að klára þetta mál sem hann og gerði með Sigurði Inga. Hann hafði ekki til þess mikinn tíma og þetta er niðurstaðan og við styðjum Bjarna í því.“ Spurður um hvort hann sé ósáttur við að Framsókn hafi haldið forsætisráðherra- stólnum segir hann að nú sé mjög erfitt að fara í nýja stjórnarmyndun og skipta á ráðuneytum. Guðlaugur Þór segir þó Sjálfstæðisflokkinn alltaf til í kosningar. Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknar og formaður fjárlaganefndar segist sátt við Lilju Alfreðsdóttur í ráðherraembætti. Hún segist hins vegar sár yfir því að það hafi verið gengið framhjá henni í annað sinn. „Ég er afar sátt við Lilju, þetta er fær kona. En forysta flokksins finnst mér hafa gengið fram hjá mér í annað sinn,“ sagði Vigdís skömmu eftir blaðamannafund í Alþingishúsinu. Hún segist að öðru leyti sátt við starf sitt sem formaður fjárlaganefndar. Ákvörðun um að skipa Lilju í embætti kom nokkuð á óvart en því hafði verið spáð að Ásmundur Einar Daðason myndi taka við landbúnaðar-og sjávarútvegsráðuneytinu af Sigurði Inga. Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður Framsóknar gerði mikinn usla í Alþingishúsinu þegar hann greindi fjölmiðlamönnum frá niðurstöðu fundar þingflokks Framsóknarflokksins. Uppákoman var hin fjörlegasta en hann trúði því að Sigmundur Davíð hefði greint frá niðurstöðu þegar hann gekk af fundi skömmu áður. Höskuldur hafði áður staðið einn á móti tillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fráfarandi forsætisráðherra á þriðjudag. Höskuldur segist styðja það að Sigurður Ingi Jóhannsson yrði forsætisráðherra. Hann hefði hins vegar ekki stutt tillögu Sigmundar í heild. „Vegna þess að það var mitt einlæga mat á þeim tíma sem að hún var lögð fram að tillagan í heild sinni myndi ekki leysa vandann. Eins og síðar kom á daginn.“ Þegar Sigmundur Davíð lætur af embætti forsætisráðherra er enginn ráðherra í sterkasta vígi Framsóknarflokks í norðausturkjördæminu en Höskuldur Þór er annar þingmaður í því kjördæmi á eftir Sigmundi Davíð.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira