Bleiki fíllinn rauk út og hvarf eins og dögg fyrir sólu Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 30. desember 2016 07:00 Hugleikur Dagsson hannaði flöskumiða Bleika fílsins.
Áramótabjórinn Bleiki fíllinn stoppaði stutt við en síðustu flöskurnar seldust í Fríhöfninni í gær. Flöskurnar komu í hillurnar degi fyrr. Enn er þó hægt að finna hann á völdum börum og veitingahúsum. „Við vildum forðast eins og unnt var að lenda ofan í jólabjóraflóðinu og því má segja að sölutíminn hafi verið knappur. Það virðist þó allt sleppa þar sem bjórinn er búinn hjá okkur og mér skilst að hann sé að klárast í Fríhöfninni,“ segir Valgeir Valgeirsson, bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi. Bjórinn er fyrsti samstarfsbjór íslenskra brugghúsa en Gæðingur í Skagafirði og Borg Brugghús í Reykjavík brugguðu bjórinn saman. Hann er í belgískum IPA-stíl en rauðrófur búa til bleika litinn. Hugleikur Dagsson teiknaði myndina sem skreytir umbúðirnar. „Við höfum það sem þema í samstarfsbjórum okkar hjá Borg að fá listafólk til að fremja list sína á umbúðirnar og höfum við verið mjög ánægð með útkomuna til þessa. Þegar samstarf við Gæðing lá fyrir var ákveðið að reyna að fá Hugleik til liðs við okkur þar sem hann teiknaði jú umbúðir og vörumerki Gæðings sem er einkar glæsilegt,“ segir Valgeir. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira