Tímamótadómur um réttarstöðu ábyrgðarmanna Birgir Örn Steinarsson skrifar 14. apríl 2016 09:39 Héraðsdómur reykjavíkur. Vísir/GVA
Í gær féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur sem markar tímamót hvað varðar réttarstöðu ábyrgðarmanna lána. Þar vann Páll Kristinsson, ellilífeyrisþegi, mál sitt gegn Landsbankanum sem var dæmdur til þess að ógilda skuldabréf upp á 4 milljónir króna, greiða stefnanda skuld upp á rúmar 515 þúsund krónur og greiða málskostnað. Málsatvik voru gróflega þannig að Páll samþykkti árið 2009 að gerast ábyrgðarmaður fyrir lán barnabarns síns Jóns Þorgilssonar ásamt tveimur öðrum fjölskyldumeðlimum. Mál fóru svo að bú Jóns var tekið til gjaldþrotaskipta sem lauk snemma árs 2012. Eftir um tveggja ára samningaviðræður við bankann var Páli gefið að gangast að ábyrgðinni. Til þess tók hann annað skuldabréf hjá bankanum upp á fjórar milljónir króna. Samkvæmt nýjum fyrningarlögum um skuldir sem sett voru árið 2010 fyrnist skuld á tveimur árum fari einstaklingur í gjaldþrot. Dómi samkvæmt er nú hægt að líta svo á að sú skuld eigi einnig við ábyrgðarmenn lána. Börkur I. Jónsson, hdl og lögmaður Páls, segir að þegar skjólstæðingur sinn tekur svo skuldabréf í bankanum árið 2014 til þess að gangast að ábyrgð sinni hafi skuldin í raun verið fyrnd þar sem tvö og hálft ár voru liðin frá því að upphaflega lántakinn kláraði gjaldþrotaskipti sín. Þar á meðal ætti skuldin einnig að hafa verið fyrnd fyrir ábyrgðarmann.Börkur segir að þarna sé möguleiki á því að ekki sé hægt að rukka ábyrgðarmenn lengur en tvö ár fari lántaki í gjaldþrot.Gæti orðið til þess að fjármálastofnanir gengu harðar að ábyrgðarmönnum „Einstaklingar verða að vera upplýstir um sín réttindi séu þeir ábyrgðarmenn hjá einstaklingum sem hafa farið í gegnum þrot,“ segir Börkur. „Mig grunar að það hafi verið slegið fjölda met í einstaklings gjaldþrotum eftir að þessi tveggja ára fyrningarregla var sett fram. Enda er hún fín fyrir einstaklinga sem vilja fá skjóta lausn á sínum skuldavanda í stað þess að fara í greiðsluaðlögun, vera að borga í mörg ár og standa uppi með einhverjar skuldir eftir það.“ Börkur segist búast við því að Landsbankinn áfrýi málið til Hæstaréttar. „Að svo gefnu að Hæstiréttur staðfesti þessa niðurstöðu Héraðsdóms, þá myndi ég giska á að fjármálastofnanir myndu ganga harðar að ábyrgðarmönnum í innheimtu en þeir hafa verið að gera fram að þessu. Til þess að ná því sem hægt er að ná á þessu tveggja ára tímabili.“ Hann segir dóminn einnig varpa fram nýjum spurningum. „Út af þessu nýju fyrningarlögum þá er þarna nokkur möguleiki á því að ábyrgðarmenn geti hætt að borga eftir tvö ár. Jafnvel þó að hann hafi verið að borga af láninu. Þessi tveggja ára fyrningarlög gera ráð fyrir því að kröfuhafinn þurfi að höfða sérstakt dómsmál gagnvart aðalskuldara til þess að fá fyrningu framlengt.“
Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Erlent Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Innlent Fleiri fréttir Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér Sjá meira