Ein af hverjum fimm konum fór aftur til ofbeldismannsins eftir dvöl í Kvennaathvarfinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. apríl 2016 10:09 Alls voru 846 komur skráðar á árinu í Kvennaathvarfið, 720 í viðtöl og 126 í dvöl. vísir/getty
Rúm 20 prósent þeirra kvenna sem leituðu til Kvennaathvarfsins á liðnu ári kærðu ofbeldið sem þær höfðu orðið fyrir til lögreglu en það hlutfall hefur aldrei verið hærra í sögu athvarfsins. Þá sneru rúmlega 20 prósent kvennanna aftur heim til ofbeldismannsins eftir dvöl í athvarfinu, en 16 prósent fóru heim eftir að ofbeldismaðurinn hafði verið fjarlægður af heimilinu. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu Samtaka um kvennaathvarf sem kemur út í dag, en allnokkur aukning var í aðsókn í Kvennaathvarf á árinu 2015 frá fyrra ári. 846 komur voru skráðar á árinu, 720 í viðtöl og 126 í dvöl. Alls dvöldu 200 íbúar í athvarfinu, 126 konur og 74 börn og var dvalartími allt frá einum degi upp í 149 daga. Að meðaltali dvaldi hver kona í athvarfinu í 19 daga en börn að meðaltali í 20 daga. Þá voru 11 íbúara í húsinu að meðaltali á degi hverjum, 7 konur og 4 börn. Konurnar sem komu í athvarfið voru á öllum aldri, eða frá 16 ára og upp í 82 ára en ofbeldismennirnir á aldrinum 18 til 83 ára. Þá voru börnin allt frá því að vera örfárra daga gömul en næri helmingur þeirra voru yngri en 6 ára, þar af 8 börn á fyrsta ári. Langflestar kvennanna, eða 94 prósent, nefndu andlegt ofbeldi sem eina ástæðu komu í athvarfið, 60 prósent höfðu einnig verið beittar líkamlegu ofbeldi og 32 prósent kynferðislegu ofbeldi. Tæplega helmingur ofbeldismannanna voru eiginmenn eða sambýlismenn kvennanna þegar þær komu í athvarfið en 23 prósetn voru að flýja fyrrverandi eigin-eða sambýlismenn. 16 prósent komu vegna ofbeldis af hálfu kærasta eða fyrrverandi kærasta þar sem sambúð var ekki hafin. Ársskýrslu Samtaka um kvennaathvarf má nálgast í viðhenginu hér að neðan.
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira