Röng vottun ógilti kaupmála Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. maí 2016 19:50 Vottar skjalsins voru hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum. vísir/vilhelm
Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Vesturlands um ógildingu kaupmála hjóna. Ástæða ógildingarinnar var sú að ekki var staðið rétt að vottun hans. Kaupmálinn sem um ræðir var gerður milli hjóna í nóvember 2005 þar sem maðurinn lá sjúkur. Maðurinn lést árið í janúar 2006 og sat eiginkona hans í óskiptu búi þar til hún gekk í hjónaband á ný í nóvember 2014. Með kaupmálanum var íbúð í Reykjavík og tveir sumarbústaðir í Reykjavík gerð að séreign konunnar. Börn hjónanna gerðu kröfu um að ekki yrði litið til kaupmálans við skipti á dánarbúi föður þeirra. Þeir töldu að ekki hefði verið rétt staðið að vottun skjalanna auk þess að dregið var í efa að maðurinn hafi gert sér grein fyrir efni skjalanna á þessum tíma sökum heilsuskorts. Ýjuðu þau meðal annars að því að undirskrift hans á skjalinu hefði verið fölsuð. Rithandarsérfræðingur var kallaður til til að meta hin umdeildu skjöl. Í mati hans kemur fram að gífurlegur munur sé á nafnritunum og verði hann ekki skýrður á annan hátt en svo að þær stafi ekki frá sama manninum. Hin meinta fölsun var kærð til lögreglunnar sem hætti rannsókn sinni á henni á haustmánuðum síðasta árs. Tveir hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum vottuðu kaupmálann. Fyrir dómi báru þær því við að þær myndu lítt eftir þessu atviki en þær hefðu ekki verið viðstaddar þegar sjúklingurinn ritaði nafn sitt á blaðið. Önnur þeirra sagði svo frá að hún hefði aðeins verið að votta að þetta væri sami einstaklingur og lá í sjúkrarúminu. Í héraði var kaupmálinn ógiltur á þeim grundvelli að líkur bentu til þess að undirskriftirnar væru falsaðar og að vottun hefði verið ábótavant. Hæstiréttur tók ekki afstöðu til meintrar fölsunar en þar sem ekki þótti sýnt fram á að hjúkrunarfræðingarnir hefðu verið viðstaddir undirritun mannsins, líkt og áskilið er í hjúskaparlögum, var niðurstaða héraðsdómara staðfest.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira