Sakfelldur fyrir líkamsárás á Jónsmessuhátíð á Hofsósi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. maí 2016 23:52 Árásin átti sér stað á tjaldsvæðinu á Hofsósi. vísir/pjetur
22 ára karlmaður var í mars dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir líkamsárás sem átti sér stað á tjaldstæðinu á Hofsósi fyrir tveimur árum. 21 mánuður refsingarinnar er skilorðsbundinn til þriggja ára. Árásin átti sér stað þann 22. júní 2014 en þá stóð bæjarskemmtunin Jónsmessuhátíð yfir. Hinn sakfelldi veittist þá að öðrum manni, sló hann með krepptum hnefa í andlitið, magann auk þess að sparka í hann þar sem hann lá óvígur. Þar að auki hótaði hann fórnarlambinu lífláti myndi hann kæra árásina. Brotaþoli hlaut nefbrot, mar og bólgur á andliti. Eftir að hafa gengið í skrokk á fórnarlambinu segir í málsatvikalýsingu að hinn sakfelldi hafi „hjálpað [fórnarlambinu] á fætur og farið með hann á salernið á tjaldsvæðinu þar sem brotaþoli þurkkaði blóð framan úr sér en á meðan hafi ákærði hringt í móður brotaþola og sagt henni að einhverjir hefðu ráðist á son hennar.“ Manninum hafði verið gefið að sök að hafa sparkað í höfuð brotaþola en hann neitaði því staðfastlega í skýrslutöku og fyrir dómi. Framburður vitna þótti ekki nógu öruggur að þessu leiti og því var hann sýknaður af þeim ákærulið.Rauf skilorð með árásinni Ákærði byggði á því fyrir dómi að rétt væri að sýkna hann á þeim grundvelli að árásin hefði átt sér stað í áflogum tveggja. Bar hann því við að brotaþoli hefði tekið fyrsta höggið en það geigað. Dómari málsins taldi árásina hins vegar hafa verið fólskulega og tilefnislausa og féllst ekki á þessa vörn. Þetta er ekki fyrsta brot mannsins. Í apríl 2014 var hann dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir brot sem hann framdi þegar hann var átján ára. Þá var hann meðal annars sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum og að hafa ruðst, í félagi við annan mann, inn á heimili á Skagaströnd og gengið þar í skrokk á húsráðanda. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að stinga getnaðarlim sínum innum opna bílrúðu og særa þar með blygðunarkennd eins farþegans. Með árásinni á Hofsósi rauf hann skilorð. Í ljósi þess að rannsókn málsins lauk í september 2014 en að ákæra var ekki gefin út fyrr en í nóvember 2015 var refsing bundin skilorði. Fyrri afbrot voru metin honum til refsiþyngingar en einnig var höfð hliðsjón af því að maðurinn „stundar nú vinnu og hefur gert um alllanga hríð. Samkvæmt vottorði vinnuveitanda hans stendur hann sig vel í vinnu og hefur verið samviskusamur og trúr í starfi.“ Auk refsingarinnar var hann dæmdur til að greiða fórnarlambinu 300.000 krónur í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra þann 17. mars og hann má lesa í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Dómstjóri fer varlega í birtingu dóma því Google gleymir engu „Maður fær að heyra spurninguna hvort það sé ekkert um að vera hjá mér,“ segir Halldór Halldórsson dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands vestra. 5. janúar 2015 09:30 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira
Dómstjóri fer varlega í birtingu dóma því Google gleymir engu „Maður fær að heyra spurninguna hvort það sé ekkert um að vera hjá mér,“ segir Halldór Halldórsson dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands vestra. 5. janúar 2015 09:30