CO+ opnar skrifstofu á Íslandi Sæunn Gísladóttir skrifar 28. september 2016 13:00 Helga Þóra Eiðsdóttir, sem stýrir starfsemi CO+ á Íslandi, og Gaute Högh, stofnandi CO+. Mynd/CO+
CO+ hefur opnað skrifstofu á Íslandi en fyrirtækið sérhæfir sig í markaðsráðgjöf og vörumerkjavinnu (Branding). CO+ er alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Kaupmannahöfn. Fyrirtækið var stofnað árið 2005 af Gaute Högh en hann var einn af stofnendum og annar eigandi Kunde og Co sem er ein stærsta auglýsingastofa á Norðurlöndunum segir í tilkynningu. Helga Þóra Eiðsdóttir mun leiða starfssemi CO+ hér á landi. Helga Þóra er með víðtæka reynslu af markaðsmálum og vörumerkjavinnu (Branding). Hún starfaði um árabil hjá Icelandair, var forstöðumaður Vildarklúbbsins og svæðisstjóri í Skandinavíu. Helga var einnig yfir alþjóðamarkaðssetningu hjá Kaupþingi og síðar forstöðumaður markaðsmála hjá Arion banka. Undanfarin fjögur ár hefur hún verið forstöðumaður markaðsmála og almannatengsla hjá BIOEFFECT. ,,CO+ sérhæfir sig í því að finna leiðir til þess að láta viðskiptavini sína ná markaðsforskoti með því að fara óhefðbundnar leiðir í vörumerkjastefnu, stefnumótun og markaðssetningu. CO+ fæst einnig við að aðstoða fyrirtæki við að skilgreina og endurskilgreina hlutverk sitt og markaðsstefnu með markaðsaðgreiningu sem er forsenda góðs árangurs. Það er spennandi verkefni að opna skrifstofu CO+ hér á landi enda eru fjölmörg tækifæri í þessum geira á Íslandi,” segir Helga Þóra. ,,CO+ er alþjóðlegt fyrirtæki sem vinnur með fyrirtækjum um allan heim að vörumerkjavinnu og markaðsráðgjöf. CO+ hefur unnið með þó nokkrum fyrirtækjum hér á landi og má þá nefna MS, Lýsi, ZO ON og BIOEFFECT. CO+ hefur starfað fyrir mörg þekkt, alþjóðleg fyrirtæki eins og LEGO Wear, Bang & Olufsen Play, Rauch, Rynkeby, Kanzi og Qua, stærsta vatnsvörumerki á Indlandi, svo nokkur séu nefnd. CO+ hefur náð mjög góðum árangri fyrir fjölda fyrirtækja út um allan heim við að markaðssetja þau og efla og styrkja vörumerki þeirra á alþjóðamörkuðum,” segir Gaute Högh stofnandi CO+.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Fleiri fréttir Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Sjá meira