Innlent

Áhugaljósmyndari neitar að fjarlægja myndir af stúlku

Þórdís Valsdóttir skrifar
Áhugaljósmyndarinn skal greiða stúlkunni dagsektir ef hann fjarlægir ekki myndirnar.
Áhugaljósmyndarinn skal greiða stúlkunni dagsektir ef hann fjarlægir ekki myndirnar. Nordicphoto/Getty
Áhugaljósmyndara, sem birti myndir af stúlku á vefsíðu án leyfis hennar, er gert að greiða dagsektir því hann hefur ekki fjarlægt myndirnar.

Stúlkan hafði reynt fyrir sér sem fyrirsæta og því haft samband við áhugaljósmyndarann sem hafði óskað eftir því að mynda stúlku með áhuga á fyrirsætustörfum. Maðurinn birti síðan myndirnar á netinu án samþykkis hennar.

Persónuvernd lagði í desember 2014 fyrir ljósmyndarann að fjarlægja myndirnar af stúlkunni. Birting myndanna á netinu var talin brjóta gegn persónuverndarlögum.

Ljósmyndarinn hefur ekki enn fjarlægt myndirnar af vefsíðunni og ákvað Persónuvernd í gær að leggja á hann dagsektir frá 1. mars síðastliðnum. Upphæð sektanna nemur 10 þúsund krónum fyrir hvern dag sem líður án þess að maðurinn fjarlægi myndirnar. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×