Gríðarlegt ofbeldi gegn borgurum í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 19. janúar 2016 17:16 Fjölmargir borgarar hafa fallið í sprengjuárásum í Írak. Vísir/EPA
Sameinuðu þjóðirnar segja ofbeldi gegn borgurum í Írak vera gríðarlega mikið. Samkvæmt nýrri skýrslu féllu minnst 18 þúsund borgarar frá 1. janúar 2014 til 31. október 2015. Þá hafa minnst 3,2 milljónir manna þurft að flýja heimili sín vegna átaka. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu SÞ, en þar eru nánast allar stríðandi fylkingar sakaðar um að hafa brotið á réttinum almennra borgara. Íraski herinn hefur verið sakaður um brot, vopnaðar sveitir hliðhollar stjórnvöldum sem og Kúrdar einnig. Þar að auki saka SÞ hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki um kerfisbundið ofbeldi gegn borgurum. Samtökin eru talin halda um 3.500 þrælum í landinu.Sjá einnig: ISIS-liðar með um 3.500 þræla í Írak Samkvæmt skýrslunni féllu 18,802 borgarar á áðurnefndu tímabili og 36,245 særðust. Þó er tekið fram að þessar tölur gætu í raun verið mun hærri. Sérstaklega gætu tölurnar úr Anbar héraði, sem er undir stjórn ISIS, ekki gefið rétta mynd af stöðunni. Þau voðaverk sem SÞ hafa skráð niður eru af ýmsum toga. Til dæmis hefur mönnum verið kastað af húsþökum eftir að þeir hafa verið sakaðir um samkynhneigð. Vígamenn ISIS eru sagðir hafa myrt 19 konur í Mosul, sem neituðu að sænga hjá vígamönnum. Þá voru kvenkynsþrælar veittar sem verðlaun í keppni vígamanna um hver gæti lagt Kóraninn best á minnið.
Mið-Austurlönd Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Fleiri fréttir Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Sjá meira