Gert ráð fyrir mun meiri vexti í jólaverslun á milli ára en sést hefur frá hruni Jóhann K. Jóhannsson skrifar 11. desember 2016 22:20
Rannsóknarsetur verslunarinnar áætlar að jólaverslunin aukist um 10,3 prósent frá síðasta ári. Samkvæmt spánni er gert ráð fyrir mun meiri vexti í jólaverslun á milli ára en sést hefur frá bankahruninu árið 2008. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarsetursins um jólagjafaverslun árið 2016. Þar segir að vaxandi hagvöxtur og aukin einkaneysla gefi vísbendingu um að velta smásöluverslunar muni ná nýjum hæðum nú í aðdraganda jóla. Árið 2014 nam vöxtur jólaverslunar 4,5 prósentum, í fyrra var vöxturinn 6,6 prósent en í ár er gert ráð fyrir 10,3 prósenta vexti. Gert er ráð fyrir því að vöxtur í sérverslun verði meiri en í dagvöru. Fram kemur í skýrslunni að hver Íslendingur muni að jafnaði eyða rúmum 53 þúsund krónum til innkaupa í nóvember og desember. Þessi upphæð nam 49 þúsund krónum í fyrra. Rannsóknarsetrið tekur dæmi um fjögurra manna fjölskyldu. Hún mun eyða um 215 þúsund krónum í jólahald í ár. Vöxtur hefur verið í allri tegund verslunar að undanförnu, til að mynda í dagvöru. Það þýðir að landinn mun gera vel við sig í mat og drykk um hátíðirnar. Þá er gert ráð fyrir aukinni sölu í raftækjum til afþreyingar sem gætu ratað í jólapakkana í ár. Um er að ræða raftæki sem öll fjölskyldan getur notað, eins og leikjatölvu. Þá má gera ráð fyrir aukinni sölu á sjónvörpum og snjallsímum. Verðlækkun hefur orðið á fötum frá síðasta ári vegna afnáms tolla um síðustu áramót. Líkur eru á að sala á fötum aukist að magni til fyrir jólin en á móti kemur að mun hagstæðara hefur orðið fyrir Íslendinga að kaupa vörur í útlöndum. Því má gera ráð fyrir að vinsældir þess að kaupa föt í útlöndum minnki ekki fyrir þessi jól. Áberandi hefur verið að jólaverslun er að færast meira á netið en ætla má að hluti neytenda kaupi allar eða hluta jólagjafa á netinu, ýmist frá erlendum eða innlendum netverslunum. Velta netverslana fyrir jólin í fyrra var 14,6 prósentum meiri en árin á undan og gera má ráð fyrir aukningu í ár.
Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira