Innlent

Bein útsending: Katrín fer á Bessastaði

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, mætti á Bessastaði í morgun þar sem hún fundaði með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Hún skilaði stjórnarmyndunarumboðinu sem hún fékk fyrir rúmri viku.

Viðræður VG, Samfylkingar, Bjartrar Framtíðar, Viðreisnar og Pírata runnu út í sandinn fyrr í vikunni og fundaði Katrín með flokksmönnum sínum í gær og aftur í morgun til þess að fara yfir stöðu mála. Í framhaldinu hélt hún á Bessastaði.

Að loknum fundi sínum með Guðna ræddi Katrín við fjölmiðla og má sjá þá umræðu í spilaranum að neðan. Guðni ávarpaði svo blaðamenn og svaraði spurningum eins og sjá má í spilaranum að ofan.

Frétt síðast uppfærð klukkan 15:21.

Að neðan má sjá textalýsingu frá atburðarásinni í morgun

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×