Handbolti

Fullt hús stiga hjá Svíþjóð undir stjórn Kristjáns

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Sænska liðið fer vel af stað undir stjórn Kristjáns.
Sænska liðið fer vel af stað undir stjórn Kristjáns. mynd/guif
Sænska landsliðið í handbolta byrjar af krafti undir stjórn Kristjáns Andréssonar en liðið vann í kvöld öruggan sigur á Slóvökum á útivelli 21-17.

Eftir 15 marka sigur á Svartfjallalandi á heimavelli í fyrsta leik var komið af erfiðara verkefni á útivelli í Slóvakíu.

Sænska liðið hinsvegar kafsigldi heimamenn í fyrri hálfleik og leiddi allt frá fyrstu mínútu. Fór munurinn þegar mest var í átta mörk en Svíþjóð leiddi 15-8 í hálfleik.

Slóvenar náðu aðeins að saxa á forskot Svía undir lok leiksins en komust aldrei nær en þrjú mörk.

Fögnuðu Svíar því öðrum sigrinum í röð undir stjórn Kristjáns en þetta voru fyrstu leikir liðsins undir hans stjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×