Aðgerðir til bjargar Mývatni eru hafnar Svavar Hávarðsson skrifar 7. nóvember 2016 07:00 Um vernd Mývatns og Laxár gilda sérlög og sérstök verndaráætlun. vísir/vilhelm
Heildstæð úttekt á fráveitumálum við Mývatn er hafin og er niðurstaða hennar væntanleg síðar í haust. Úttektin verður lögð til grundvallar með aðkomu ríkisins við framkvæmdir í fráveitumálum í Skútustaðahreppi. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Úttektin er gerð að beiðni umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Skútustaðahrepps í beinu framhaldi af vinnu samstarfshóps ráðherra vegna ástandsins í vatninu – þar sem fjallað var um orsakir vandans og mögulegar aðgerðir til úrbóta. Í skýrslunni segir að „gott er að ná niðurstöðu um fjármögnun átaks í fráveitumálum við Mývatn sem fyrst svo hægt sé að gera ráð fyrir verulegum framkvæmdum í Reykjahlíð á árinu 2017“. Í svari ráðuneytisins, þar sem Hugi Ólafsson skrifstofustjóri heldur á penna, segir að engin forskrift sé í lögum um vernd Mývatns og Laxár, eða í reglugerð, um hver hlutur ríkisins ætti að vera, eða gæti verið, í framkvæmdum í fráveitumálum. Hins vegar sé ljóst að „fullur skilningur er á því að sveitarfélagið er fámennt og á erfitt með að axla eitt fjárhagslega ábyrgð á því að hertar kröfur gilda um fráveitumál þar, sem byggðar eru á sérlögum [Lög um verndun Mývatns og Laxár]. Þessi mál þarf að skoða að fenginni úttekt á fráveitumálunum og vinna í samvinnu ríkis og sveitarfélagsins.“ Nefnt er í skýrslunni að efla verði rannsóknir og vöktun á Mývatni og Laxá og lífríkinu þar. Samþykkt var í ríkisstjórn að efla rannsóknir og vöktun, samkvæmt minnisblaði umhverfisráðherra, og var þar sérstaklega nefnd vöktun á innstreymi næringarefna og skyldar rannsóknir, sem geta gagnast til að bæta yfirsýn yfir uppsprettur næringarefna og hugsanlegar afleiðingar næringarefnaauðgunar og blábakteríublóma. Drög að vöktunar- og rannsóknaráætlun mun liggja fyrir, en ekki hefur verið gengið frá endanlegri samþykkt hennar og vinnan ekki komin af stað. „Vonandi verður gengið frá lausum endum þar vel tímanlega fyrir næsta sumar,“ segir í svari ráðuneytisins. Þá hefur Umhverfisstofnun (UST) lýst sig reiðubúna til að efla fræðslu til íbúa og ferðamanna í samvinnu við sveitarfélagið, heimamenn og aðra. Það er talin vera skjótvirk leið til bættrar umgengni við vatnið og til þess að halda áhrifum manna í lágmarki. „Nú er að hefjast vinna við endurskoðun verndaráætlunar fyrir Mývatn og Laxá og í þeirri vinnu felst mikið samtal við heimamenn og þá sem svæðið nýta.“Augljós merki ofauðgunarEins og Fréttablaðið hefur fjallað um sýnir lífríki Mývatns augljós merki um ofauðgun. Þau merki fóru að sjást fyrir mörgum árum og eru talin tengjast athöfnum manna sem hafa breytt næringarefnaflæði í vatnið. Mývatn er mjög næringarríkt frá náttúrunnar hendi og fræðilega séð getur smá viðbót farið með lífríkið í óæskilegan farveg. Helst hefur verið litið til fráveitumála við Mývatn og niðurstaða samstarfshóps umhverfisráðherra um málefni vatnsins var að rétt væri að ríkisvaldið og Skútustaðahreppur ynnu saman að umbótum í fráveitumálum, og öðrum aðgerðum til að draga úr innstreymi næringarefna í Mývatn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira