Slitlagið lengist inn á óbyggðir Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 24. október 2016 20:15
Einn lengsti slitlagskaflinn, sem bæst hefur við vegakerfið á undanförnum árum, er í óbyggðum og liggur meðfram Heklu. Hann er á Landvegi, ofan efstu bæja í Rangárvallasýslu og þarna eru nú komnir samtals þrettán kílómetrar af nýju slitlagi. Í sumar var lagt á fimm kílómetra kafla milli Þjófafossvegar og Landmannaleiðar, sem bættist við átta kílómetra kafla frá Galtalækjarskógi, sem lagður var fyrir þremur árum. Bundnu slitlagi er yfirleitt fagnað hvar sem það kemur á malarvegi. Þar með dregur úr hávaðaskrölti í bílum, þjóðvegarykið minnkar, vegfarendur upplifa minni hljóðmengun, minni rykmengun og vegna minna viðnáms kostar aksturinn minni bensíneyðslu og minni útblástur. Það er þó ekki víst að malbik á þessum stað kæti alla því hér erum við komin upp í óbyggðir. Hér eru jeppar algengustu farartækin, á 38 tommu dekkjum ef ekki stærri, enda flestir sem hér aka um á leið í hálendisperlur eins og Landamannalaugar og Veiðivötn.Lengsta bundna slitlagið á hálendinu sunnan jökla er á Sprengisandsleið, milli Sultartanga og Vatnsfellsvirkjunar. Nýjasti malbikskaflinn á Landvegi, 13 kílómetrar, sést neðst til vinstri. Þá vantar aðra 13 kílómetra til að tengja slitlagskaflana saman og mynda malbikaða hringleið inn á hálendiðMargir eru andsnúnir því að bundið slitlagt sé lagt á hálendisvegi. Hér virðast þó engir hafa hreyft andmælum, en þess má geta að áður var komið slitlag ennþá ofar, á kafla Sprengisandsleiðar milli Sultartanga og Vatnsfellsvirkjunar. Bæta þarf þrettán kílómetrum til viðbótar á Landveg til að komin verði malbikuð hringleið inn á hálendið, um brúna við Sultartangavirkjun.
Mest lesið Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Sjá meira