Dagur Kár á heimleið: „Hann finnur sér góðan stað til að spila á“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. október 2016 21:57 Dagur Kár Jónsson varð bikarmeistari með Stjörnunni 2015. vísir/þórdís Inga
Körfuboltamaðurinn ungi Dagur Kár Jónsson sem spilar með St. Francis-háskólanum í Bandaríkjunum er á heimleið og mun spila aftur í Domino's-deildinni. Þetta staðfestir faðir hans, Jón Kr. Gíslason, goðsögn í íslenskum körfubolta, við Vísi. Karfan.is greindi fyrst frá málinu fyrr í kvöld. „Þetta er rétt. Dagur er á heimleið. Þetta gerðist frekar hratt þannig við erum bara að skoða málin,“ segir Jón Kr. í samtali við Vísi. Dagur Kár er uppalinn Stjörnumaður en hann spilaði frábærlega fyrir Garðabæjarliðið tímabilið 2014-2015 áður en hann fór út til náms. Hann skoraði 17,6 stig að meðaltali í leik, tók þrjú fráköst og gaf 3,6 stoðsendingar. Hann verður augljóslega mikill styrkur fyrir hvaða lið sem er í Dominos-deildinni en það er ekki gefið að hann fari heim í Garðabæinn þar sem hann varð bikarmeistari með Stjörnunni 2015. „Það er ekkert gefið í þessum bransa,“ segir Jón Kr. og hlær. „Við getum eiginlega ekki meira sagt. Dagur er bara á heimleið og hann finnur sér góðan stað til að spila á.“ Jón Kr. vildi ekkert segja til um hvort lið væru búin að hafa samband og hvað þá eftir að fréttin birtist í kvöld. Hann staðfesti engu að síður að áhugi væri svo sannarlega til staðar frá liðum í deildinni á syninum.
Dominos-deild karla Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira