Hagnaður Landsbankans dregst töluvert saman Sæunn Gísladóttir skrifar 27. október 2016 16:24 Landsbankinn hagnaðist um 16,4 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Vísir/Rósa Jóhannsdóttir
Afkoma Landsbankans var jákvæð um 16,4 milljarða króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 samanborið við 24,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2015, segir í tilkynningu. Hreinar vaxtatekjur voru 26,2 milljarðar króna og hækkuðu um 4,7 prósent á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 5,9 milljörðum króna og hækkuðu um 15 prósent frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar námu 4,4 milljörðum króna samanborið við 12,3 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Aðrar rekstrartekjur námu 4,7 milljörðum króna samanborið við 8,4 milljarða króna ári fyrr og skýrist lækkunin aðallega af minni hagnaði af hlutabréfum. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 8,5 prósent á ársgrundvelli samanborið við 13,5 prósent á sama tímabili 2015. Rekstrartekjur á fyrstu níu mánuðum ársins námu 41,2 milljörðum króna samanborið við 50,9 milljarða króna á sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður samtals lækkaði um 0,4 prósent á milli ára og er 17,6 milljarðar króna, þar af var launakostnaður 10,4 milljarðar og annar rekstrarkostnaður 7,2 milljarðar. Heildareignir Landsbankans í lok september voru um 1.134 milljarðar króna samanborið við 1.176 milljarða króna ári fyrr og hefur því efnahagur bankans dregist saman um tæp 4 prósent síðustu 12 mánuði. Landsbankinn greiddi á þessu ári 28,5 milljarða króna í arð í tveimur greiðslum, í apríl og september. Þann 15. september birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á þremur tilgreindum endurkaupatímabilum. Á fyrsta endurkaupatímabili keypti Landsbankinn um 120 milljón hluti eða 0,5 prósent af útgefnum hlutum og nam kaupverð þeirra 1,2 milljörðum króna. Endurkaupin geta að hámarki numið samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2 prósent af útgefnu hlutfé. Í lok september var eigið fé bankans 251,1 milljarður króna. Eiginfjárhlutfallið var 29,1 prósent samanborið við 29,2 prósent á sama tíma árið áður.Aldrei greitt hærri arðLandsbankinn hefur greitt verulegar fjárhæðir í arð til eigenda á árinu, hærri en nokkru sinni fyrr.
Mest lesið Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Sjá meira