Sport

Markmiðið að komast á pall

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska stúlknaliðið.
Íslenska stúlknaliðið. vísir/ernir
Íslenska landsliðið í hópfimleikum kom til Maribor í Slóveníu seint í gærkvöldi.

Evrópumeistaramótið í hópfimleikum hefst á morgun en stúlknalið og blandað lið yngri keppenda Íslands ríða á vaðið. Bæði lið æfðu í Lukna höllinni í dag en hún er á sama stað og Ljudski vrt, heimavöllur fótboltaliðsins FC Maribor sem lék í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu tímabilið 2014-15.

„Við ætlum að taka því svolítið rólega í dag, aðeins að finna áhöldin, koma okkur í gírinn og sjá hvernig flugþreytan fór með okkur,“ sagði Bjarni Gíslason, þjálfari stúlknaliðsins, þegar blaðamaður Vísis hitti hann að máli fyrir æfinguna í dag.

„Á morgun ætlum að keyra á fullu eins og við gerum í úrslitunum. Við búumst við því að komast í úrslit og enda í einum af þremur efstu sætunum,“ sagði Bjarni ennfremur en úrslitin í stúlknaflokki fara fram á föstudaginn.

Hann segir að markmiðið sé að ná í verðlaun á mótinu.

„Markmiðið er 100% að vera á palli. Sé litið á styrkleika liðanna erum við alveg á toppnum og við eigum góða möguleika á þessu móti. Ef allt fer eins og það á að fara eigum við möguleika á titlinum,“ sagði Bjarni.

En mun íslenska liðið brydda upp á einhverjum nýungum á morgun?

„Hver og einn einstaklingur er að taka upp nýjar æfingar en þetta er svolítið hefðbundin stökk eins og hjá mörgum liðum,“ sagði Bjarni að lokum.

Lukna höllin í Maribor.vísir/ingviþ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×