Meira en fimmföldun í gagnaflutningsnotkun í farsímum Hafliði Helgason skrifar 12. október 2016 17:00 Höfuðstöðvar 365 í Skaftahlíð. Vísir/Andri Marinó
Á fyrstu 6 mánuðum þessa árs hafa viðskiptavinir 365 í farsímaþjónustu aukið verulega við gagnaflutningsnotkun sína, samanborið við fyrra ár. Aukningin nemur 443% og er bein afleiðing af nýjum áskriftaleiðum sem kynntar voru í upphafi þessa árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá 365.„Það eru nokkrar ástæður fyrir því að við erum að sjá þessa miklu aukningu. Við kynntum fyrr á árinu, fyrst fyrirtækja á fjarskiptamarkaði, að viðskiptavinir okkar þurftu ekki að hafa áhyggjur af notkun á gagnaflutningi í farsíma. Stærsti hluti okkar viðskiptavina greiðir einungis 3.000 kr. á mánuði fyrir öll símtöl, sms og gagnaflutning og þetta kann fólk að meta. Fjöldi viðskiptavina okkar segist vera að spara fjölskyldunni allt að 100.000 kr. á ári með því að vera með farsímana hjá 365,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365. 365 býður þjónustu sína yfir 3G og 4G dreifikerfi Símans. Þannig hafa allir landsmenn aðgang að þjónustu 365. Engin skilyrði eru fyrir því að kaupa sjónvarpsáskriftir hjá 365 til þess að njóta kjaranna að því er fram kemur í tilkynningunni. Deila klippum á samfélagsmiðlum„Nú eru um 7 þúsund sjónvarpsáskrifendur 365 búnir að sækja sér 365 app í snjallsíma, spjaldtölvur og AppleTV en það fylgir án aukakostnaðar með sjónvarpsáskrift hjá 365. Þar er hægt að horfa í öllum snjalltækjum á allar helstu sjónvarpsstöðvar,“ segir Sævar.Hann segist sérstaklega ánægður með hve viðskiptavinir 365 séu duglegir að nýta sér nýjungar sem einungis séu í boði hjá 365, t.d. að deila allt að 10 sekúndna klippum af íþróttakappleikjum á Facebook og Twitter. „Viðskiptavinir okkar geta horft á sjónvarp hvar sem er, hvenær sem er og á hvaða tæki sem er og það án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að reikningurinn hækki. Þetta er gríðarleg kjarabót fyrir alla,“ segir Sævar Freyr.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira