Sport

Bæting á öllum áhöldum skilaði blandaða liðinu bronsverðlaunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Blandaða liðið fagnar 3. sætinu.
Blandaða liðið fagnar 3. sætinu. mynd/steinunn anna svansdóttir
Ísland vann nú rétt í þessu til bronsverðlauna í blönduðum flokki á lokadegi EM í hópfimleikum sem fer fram í slóvensku borginni Maribor.

Íslenska liðið fékk 56,066 í heildareinkunn. Ísland bætti sig á öllum áhöldum og heildareinkuninn var 2,65 hærri en í undankeppninni.

Þetta eru fyrstu verðlaunin sem blandað lið frá Íslandi í fullorðinsflokki vinnur til á EM í hópfimleikum.

Svíar skutust upp fyrir Dani á lokasprettinum og hirtu gullið. Sænska liðið fékk 59,816 í heildareinkunn og það danska 58,350.

Íslenska liðið byrjaði á gólfæfingum, sýndi frábæra takta og fékk 21,066 í einkunn fyrir. Ísland var í efsta sætinu eftir 1. umferðina.

Stökk á dýnu og trampólíni gengu einnig skínandi vel og skiluðu íslenska liðinu 17,800 og 17,200 í einkunn.

Á endanum varð 3. sætið niðurstaðan og íslensku krakkarnir eru bronsmedalíunni ríkari.

Keppni í kvennaflokki hefst klukkan 13:00. Fylgjast má með henni með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×