Biggi lögga: „Prufum að setja okkur í þeirra spor“ Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 15. október 2016 21:30 Birgir sat fyrirlestur hjá Khattab Almohammad sem sést með fjölskyldu sinni á myndinni til hægri. Vísir/Auðunn Níelsson „
Í dag upplifði ég áhrifamestu kennslustund sem ég hef nokkurntíman setið á minnu skólagöngu. Hún hafði þau áhrif á nemendur að margir hágrétu eða þurftu að fara afsíðis og jafna sig þegar gert var hlé á fyrirlestrinum.“ Þannig byrjar Facebook færsla Birgis Örn Guðjónssonar, eða Bigga löggu, sem hefur vakið mikla athygli. Birgir segir þar frá fyrirlestri sem Khattab Almohammad hélt í Háskólanum á Akureyri. Khattab er einn þeirra sýrlensku flóttamanna sem nú hefur aðsetur á Akureyri.„Khattab er menntaður enskukennari, ótrúlega viðkunnalegur og mikill húmoristi. Khattab kemur frá landi sem leikur svo stórt hlutvek í mannkynssögunni að Ísland er sem einfaldur leikmunur í samanburði. Menning landsins er svo dýrmæt að hún gefur öllum heiminum meira gildi. Þetta land gaf okkur meðal stafrófið sem gerir þér kleift að lesa þessi orð, sem og nóturnar sem gerðu mönnum eins og Betoven, Bítlunum og Bowie kleift að varðveita listina sem þeir skópu. Khattab kemur frá landi sem var fullt af lit, tónlist og gleði. Landi þar sem fólk gat búið í sátt og samlyndi, þrátt fyrir misjafnar skoðanir og trú. Svo kom stríðið,“ skifar Birgir. Khattab lýsti í fyrirlestri sínum reynslu sinni af því að vera flóttamaður og þurfa að yfirgefa heimaland sitt vegna stríðsátaka.„Khattab er flóttamaður frá Sýrlandi. Nú er búið að eyðileggja landið hans. Khattab flúði frá landinu sínu árið 2012 og nú býr hann á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni. Khattab sagði okkur frá landinu sem hann og fjölskylda hans bjuggu í þar til stríðið skall á. Hann sagði okkur frá því hvernig Assad tók að myrða borgara sína. Fyrst í tuga tali, svo hundraða tali, þúsundatali, tugþúsunda tali og nú hundruð þúsunda tali. Hann sagði okkur frá því hvernig búið er að hertaka allar opinberar byggingar undir fangelsi þar sem almennum borgurum er smalað og þeir teknir af lífi.„Hann sýndi okkur myndband af lítilli stúlku sem var út ötuð í blóði. Á meðan sjúkraflutningamenn hlúðu að henni láku tárin niður kinnar hennar og hún grát bað um að nattbuxurnar yrðu ekki klipptar út af því að þær voru nýjar. Þarna hafði Khattab verið nokkra stund með kökkinn í hálsinum en þarna gat hann ekki meira. Hann brotnaði niður og hágrét fyrir framan allan bekkinn.“Birgir veltir því upp hvort að fregnir af hörmungum í Sýrlandi og aðstæðum flóttafólks séu einfaldlega of hræðilegar til að meðtaka og þess vegna sé almenningur orðinn ónæmur fyrir fréttum af stríðinu.„Við höfum heyrt svo margar stríðsfréttir frá Sýrlandi að við erum orðin ónæm. Þetta verður eitthvað svo fjarlægt. Bara eins og hver önnur Hollywood mynd. Við hættum að tengja fréttirnar við venjulegar fjölsyldur sem eru að upplifa meiri hörmungar en við getum ímyndað okkur. Það er að gerast núna í kvöld, í nótt og á morgun. Kannski er þetta bara of hræðilegt fyrir okkur að meðtaka.“Að vera ekki sama„Khattab var spurður að því hvað við gætum gert. Hvort við, almennir borgarar á litla Íslandi gætum gert eitthvað sem skiptir máli. Það sem hann bað um var ekki flókið en engu að síður gífurlega mikilvægt. Hann bað okkur um að vera ekki sama. Hann bað okkur um að láta í ljós skoðun okkar um að við væru á móti stríðinu á Sýrlandi. Að við værum á móti því að verið væri að sprengja upp heimili fólks, spítala og skóla. Hingað til höfum við ekki staðið okkur nógu vel í þeim málum.„Það er búið að eyðileggja heimaland Khattab og fjölskyldu hans. Hann á sér samt þann draum að þar komist aftur á friður og að hann komist einn daginn aftur heim. Ef ég get lagt eitt sandkorn á þá vogarskál um að sá draumur rætist þá er það mín skylda. Þess vegna skrifa ég þessi orð og hvet okkur öll til að gleyma ekki því sem er að gerast í Sýrlandi. Stöndum upp fyrir þessa mögnuðu þjóð.“Khattab og fjölskylda hans hittast á Ráðhústorgi á Akureyri á hverju laugardegi til að mótmæla stríðinu í Sýrlandi. „Að lokum vil ég segja frá því að Khattab mætir með fjölskyldu sinni og vinum á Ráðhústorgið á Akureyri á hverjum laugardegi þar sem þau mótmæla friðsamlega og fallega þessu hörmulega stríði í landinu þeirra. Hann sagðist vona að með tímanum myndu fleiri koma í hópinn. Líka Íslendingar. Núna um helgina verða þau þar frá klukkan 16:00 til 16:30. Ég hvet Akureyringa til að koma þessum vinum okkur rækilega á óvart og fjölmenna með þeim núna og næstu laugardaga. Látum þau ekki standa ein. Við eigum þessari þjóð svo margt að þakka. Sýnum það í verki. Prufum að setja okkur í þeirra spor.“
Flóttamenn Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira