Glamour

"Ekki séns að hún sé ómáluð“

Ritstjórn skrifar
Adda Soffía segir ekki möguleika á að Kim Kardashian hafi verið ómáluð í París.
Adda Soffía segir ekki möguleika á að Kim Kardashian hafi verið ómáluð í París. Glamour/Getty
„Það er ekki fræðilegur möguleiki að hún sé ómáluð þarna. Hún er minna máluð en vanalega en ómáluð er hún ekki,“ segir Adda Soffía Ingvarsdóttir, ritstjóri förðunarkafla Glamour og förðunarfræðingur.

Kim Kardashian var sögð hafa mætt ómáluð á sýningu Balenciaga á tískuvikunni í París á dögunum, ekki bara hér á Glamour heldur á mörgum öðrum miðlum eins og Abc, Popsugar og Cosmopolitan. Förðurnarfræðingur Kardashian, Mario Dedivanovic, birti einnig mynd á Instagramsíðu sinni þar sem hann sagði hana bara vera með rakakrem. Sjá mynd hér fyrir neðan.

Fríða María Harðardóttir, ein fremsta sminka landsins vakti athygli á þessu á Facebook-síðu sinni í gær og sagði það af og frá að Kim Kardashian væri ómáluð á þessari mynd. Viðbrögðin stóðu ekki á sér og fjöldi fólks tók í sama streng. 

„Það að ná þessari förðun sem Kim er með þarna tekur bæði tíma og krefst oftar en ekki fleiri förðunarvara en þegar maður er mála sig meira. Kim er náttúrulega vön að vera mjög mikið máluð og þannig þekkjum við hana, svo það er kannski ekki skrýtið að pressan hafi tekið þessu svona. Á sýningu Balenciaga var Kim máluð eins og við flest erum dagsdaglega, sem er í sjálfu sér góð tilbreyting að sjá," segir Adda Soffía. 

Undanfarið hefur verið mikil umræða í kringum það að vera ómálaður eftir að söngkonan Alicia Keys fór út með það að hún hefur ákveðið að hætta að nota förðunarvörur á almannafæri.  Það er hins vegar allt annar handleggur en það sem frú Kardashian West er að gera hér eins og lesa má í greininni um Keys hér fyrir ofan. 



Obsessed No makeup today at @balenciaga Moisturized #ByMario #kimkardashian hair laid by @chrisappleton1

A photo posted by Mario Dedivanovic (@makeupbymario) on


Tengdar fréttir

Kim komin í smellubuxur

Smellubuxurnar frægu frá tíunda áratugnum komnar í fataskáp Kim Kardashian






×