Bein útsending: Aðalskoðun bíður eftir milljónasta viðskiptavininum Tinni Sveinsson skrifar 29. september 2016 10:30 Milljónasti viðskiptavinurinn verður leystur út með gjöfum en búist er við honum í dag eða á morgun.
Fyrirtækið Aðalskoðun fagnar stórum áfanga þessa dagana en viðskiptavinir þess telja nú um milljón. Í tilefni af þessu bryddar það upp á þeirri nýbreytni að streyma beinni útsendingu frá fimm af átta skoðunarstöðvum sínum á meðan beðið er eftir því að milljónasti viðskiptavinurinn renni með bílinn sinn á skoðunarbrautina. Útsendingin er frá skoðunarstöðvunum í Hjallahrauni í Hafnarfirði, Skeifunni og Grjóthálsi í Reykjavík, við Skemmuveg í Kópavogi og Holtsgötu í Reykjanesbæ. Tekið verður höfðinglega á móti milljónasta viðskiptavininum og hann leystur út með gjöfum, flug fyrir tvo til Evrópu og fría skoðun í tíu ár. „Þegar Aðalskoðun hóf starfsemi fyrir 21 ári síðan töldu flestir að erfitt yrði að keppa við aðila sem þá hafði notið einokunar í skjóli ríkisins í áratugi. Viðtökurnar voru frábærar strax frá upphafi og nú er svo komið að við erum að nálgast þann stóra áfanga að skoða milljónasta ökutækið okkar,“ segir Ómar Þorgils Pálmason, eigandi Aðalskoðunar, í fréttatilkynningu. Hér fyrir neðan má sjá beinu útsendinguna. Búist er við því að milljónasti viðskiptavinurinn komi í dag eða á morgun. Nánari upplýsingar um skoðunarstöðvar er að finna á heimasíðu Aðalskoðunar. Hægt er að fylgjast með því hvernig talning viðskiptavinanna gengur á Facebook-síðu fyrirtækisins.Uppfært 30. 9. klukkan 10.00.Miðað við þróun gærdagsins þá lítur út fyrir að sá milljónasti muni detta inn öðru hvoru megin við hádegi í dag og má því reikna með góðri aðsókn á skoðunarstöðvarnar. Landinn hefur tekið vel í nýbreytni Aðalskoðunar en yfir fjögur þúsund manns hafa nú þegar fylgst með beinni útsendingu frá skoðunarstöðvunum. Það ríkir ekki bara eftirvænting hjá þeim sem hafa verið að stilla sig inn á beinu útsendinguna því starfsmenn Aðalskoðunar bíða einnig spenntir eftir milljónasta bílnum. „Þetta hefur kryddað upp á lífið hér hjá Aðlaskoðun þar sem starfsmenn vita aldrei hvort að bílinn sem verið er að skoða verði sá milljónasti,” segir Hörður Harðarson hjá Aðalskoðun.Aðalskoðun hóf starfsemi fyrir 21 ári.
Mest lesið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Sjá meira