Ekkja Ólafs Lárussonar gefur Nýlistasafninu fjölda verka Magnús Guðmundsson skrifar 10. september 2016 07:00 Becky Forsythe og Þorgerður Ólafsdóttir munu stýra yfirlitssýningu á verkum Ólafs Lárussonar í Marshall-húsinu í upphafi næsta árs. Vísir/Anton Brink
Nýlistasafninu barst í vikunni gjöf frá Sigrúnu Báru Friðfinnsdóttur, ekkju Ólafs Lárussonar myndlistarmanns. Ólafur var á meðal mikilvirkustu myndlistarmanna sinnar kynslóðar en féll frá árið 2014. Hann hefði fagnað 65 ára afmæli sínu í dag, þann 10. september. Gjöfin inniheldur mikið af efni frá vinnustofu Ólafs frá árunum 1970 til 1990, þar með talinn hluti af persónulegu bókasafni hans, filmusafn, negatífur og upptökur af gjörningum, listaverk, ljósmyndir, skyggnur, verk á hugmyndastigi og fjölmargt fleira. Þorgerður Ólafsdóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins, segir að fyrir dyrum standi yfirlitssýning á verkum Ólafs í upphafi næsta árs í nýju sýningarrými safnsins í Marshall-húsinu úti á Granda. „Einn mikilvægasti hluti þessarar veglegu gjafar er að söfnin eru að endurskoða hlutverk sitt með það hverju þau eiga að safna. Hérna erum við að tala um allt sem fyrirfinnst á vinnustofu listamanna. Efni sem varpar miklu betra ljósi og veitir betri innsýn í ferli listamanns og þá hugmyndavinnu sem liggur á bak við verkin,“ segir Þorgerður.Rollingline, verk eftir Ólaf Lárusson.Ólafur var einn af stofnendum Nýlistasafnsins og sýningin sem stendur fyrir dyrum hefur verið lengi í burðarliðnum. „Því miður tókst ekki að koma þessari sýningu upp áður en hann féll frá. Þess vegna á þessi sýning að vera hylling á lífi hans og starfi og draga fram í ljósið öll þessi merku verk sem hann gerði á þessum tíma. Verk sem hafa aldrei verið sýnd saman.“ Þorgerður segir að safnið sé nú með mikið efni, líka frá söfnum og einkasöfnum, og að það verði mikil áskorun að gera því góð skil. „Ég lét Sigrúnu Báru vita fyrir um ári að þessi sýning stæði fyrir dyrum sem opnunarsýning Marshall-hússins,“ segir Þorgerður. Í vor hafi Sigrún Bára tekið ákvörðun um að afhenda safninu allt þetta efni. „Við erum ákaflega þakklát fyrir það. Ólafur hafði sjálfur haldið utan um og skráð allt sérstaklega vel. Þannig var hann í raun búinn að leggja línurnar fyrir okkur með hvernig við ættum að varðveita efnið hans.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira