Á gjörgæslu eftir alvarlegt vinnuslys í Skógafossi Sveinn Arnarsson skrifar 11. september 2016 15:00 Mynd úr safni af Dettifossi, skipi Eimskips.
Starfsmaður á Skógafossi, flutningaskipi Eimskipa, liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir alvarlegt slys í gærmorgun við lestun í Ísafjarðarhöfn. Féll hann um fjóra metra niður af skipinu. Var maðurinn sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann liggur enn á gjörgæslu. Landspítalinn varðist fregna um málið og vildi ekki veita upplýsingar um líðan mannsins að svo stöddu þegar fréttastofa spurðist fyrir um málið. Hinsvegar staðfesti stofnunin að maður hefði verið fluttur frá Ísafirði í gær eftir slys í Ísafjarðarhöfn sem væri enn á gjörgæsludeild spítalans. Hvorki fékkst uppgefið hvort maðurinn væri með meðvitund eða hvort hann hafi þurft á aðgerð að halda.Litlar upplýsingar fengust frá spítalanumFRÉTTABLAÐIÐ/VILHELMFéll með höfuðið á undanSamkvæmt upplýsingum frá vaktmanni við Ísafjarðarhöfn féll maðurinn af skipinu og steyptist niður á bryggjuna með höfuðið á undan. Starfsmaðurinn hafi við fallið misst meðvitund þrátt fyrir að vera með sterkan hjálm sem líkast til hefur bjargað miklu við fallið. Lögreglan á Ísafirði staðfestir að málið sé á borði þeirra sem og Samgöngustofu. Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskipa, segir fyrirtækið líta slys af þessu tagi mjög alvarlega. Hann segir að snemma í gærmorgun hafi þetta slys átt sér stað við lestun í skipinu. Að öðru leyti viti hann ekki nákvæma málavöxtu en segir málið í öruggum höndum yfirvalda. „Ávallt þegar svona slys eiga sér stað er kölluð til lögregla og Vinnueftirlitið. Við munum vinna náið með opinberum aðilum að því að rannsaka hvað raunverulega gerðist,“ segir Ólafur. Hann bendir einnig á að mikilvægt sé að komast að því hvað gerðist. „Ef niðurstaða rannsóknar er sú að eitthvað skortir upp á í okkar öryggismálum munum við að sjálfsögðu fara yfir alla okkar verkferla. Við leggjum mikið upp úr öryggi starfsmanna og annarra á okkar vinnusvæðum,“ bætir Ólafur við. Nokkuð hefur verið um alvarleg vinnuslys síðustu daga. Rafvirki sem vann hjá Veitum lést eftir vinnuslys fyrir um viku síðan. Var hann ástamt vinnufélögums ínum að undirbúa tengingu heimtaugar á nýbyggingarsvæði í Úlfarsárdal er hann fékk straum úr kapli. Einnig slasaðist maður í grunninum við Hafnartorg í Reykjavík fyrir helgi þar sem hann hapaði nokkra metra og var fluttur í forgangsakstur á Landspítalann með mikla áverka.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira