Ein umfangsmesta sprengjuæfing sinnar tegundar Ásgeir Erlendsson skrifar 13. september 2016 19:15
Ein umfangsmesta sprengjuæfing sinnar tegundar er nú haldin hér á landi á vegum Landhelgisgæslunnar. Þegar litið var yfir öryggissvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli mátti sjá vel búnar sprengjusveitir frá fjórtán löndum á víð og dreif. Ástæðan er sprengjuæfingin Northern Challenge sem nú er haldin í fimmtánda sinn. Landhelgisgæslan hefur frá árinu 2001 haft veg og vanda af skipulagningu hennar en alls munu 250 þátttakendur miðla af reynslu sinni næstu tvær vikurnar. Þar eru æfð viðbrögð við hryðjuverkum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. „Þetta er stærsta æfing þessarar tegundar sem haldin er í heiminum.“ Segir Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður séraðgerða- og sprengjusviðs Landhelgisgæslunnar.Mikilvæg reynsla og þekking Markmiðið er ekki einungis að aftengja sprengjur heldur einnig að rannsaka þær og komast að uppruna þeirra. Reynt er að hafa aðstæður sem raunverulegastar og til að mynda er sérhæfð stjórnstöð virkjuð meðan á æfingunni stendur. Marvin Ingólfsson, sprengjusérfræðingur, segir æfingu sem þessa sérlega mikilvæga fyrir alla aðila og ekki síst Landhelgisgæsluna. „Fyrir okkur persónulega hjá gæslunni er þetta mjög mikilvæg reynsla og þekking sem við fáum í gegnum þessa æfingu.“
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Fleiri fréttir Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Sjá meira