Mikill meirihluti vill sektir í stað fangelsis Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. september 2016 06:15 Helmingur þeirra sem Fréttablaðið spurði segist vilja breyta fíkniefnalöggjöfinni á þennan hátt. Vísir/Pjetur „
Ég held að þessi könnun styðji það að fólk vilji breytingar, en þær verða að gerast með yfirveguðum hætti,“ segir Borgar Þór Einarsson lögfræðingur. Hann er formaður starfshóps um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum áhrifum vímuefnaneyslu. Ein af tillögunum er að breyta lögum þannig að varsla á neysluskömmtum fíkniefna varði sektum en ekki fangelsisvist.Helmingur þeirra sem Fréttablaðið spurði segist vilja breyta fíkniefnalöggjöfinni á þennan hátt, fjórðungur vill ekki breytingar, 22 prósent eru óákveðin, en þrjú prósent svöruðu ekki spurningunni. Þegar einungis er litið til svara þeirra sem afstöðu tóku sést að tveir af hverjum þremur eru hlynntir því að breyta löggjöfinni þannig að varsla á neysluskömmtum varði sektum en ekki fangelsi. Þriðjungur er aftur á móti andsnúinn því að gera slíkar breytingar. Borgar Þór segir augljóst að í samfélaginu séu uppi háværar raddir, bæði þeirra sem vilja ekki gera neinar breytingar og þeirra sem vilja stíga mjög róttæk skref. Rétt er að taka fram að sú venja hefur nú þegar mótast við framkvæmd fíkniefnalaga að málum er lokið með sekt þegar öruggt þykir að magn haldlagðra efna sé til einkaneyslu. Tillaga starfshópsins snýst því í raun um að breyta lögum þannig að þau endurspegli framkvæmd þeirra. Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.164 manns þar til náðist í 795 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 6. og 7. september. Svarhlutfallið var 68,3 prósent. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira