Innlent

Vann 45 milljónir í lottó á laugardag: Dreymdi vinningstölurnar fyrir mörgum árum síðan

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Heppnin var með hjónum um liðna helgi þegar þau unnu 45 milljónir í lottó.
Heppnin var með hjónum um liðna helgi þegar þau unnu 45 milljónir í lottó. vísir/valli
Vinningshafinn í lottó frá því síðasta laugardag kom til Getspár í morgun með vinningsmiðann sem gaf honum rúmar 45 milljónir í vinningi. Í tilkynningu frá Getspá kemur fram að eigandinn hafi dreymt vinningstölurnar fyrir mörgum árum síðan og skrifað þær á leikspjald.

Hann týndi hins vegar leikspjaldinu og fann það ekki aftur fyrr en nýlega og ákvað þá að láta reyna á draumatölurnar, þó að þær væru vissulega komnar til ára sinna.   

„Þau hjónin eru að skipta um húsnæði og átti að skrifa undir sama dag og þau uppgötvuðu þennan stóra lottóvinning.  Keyrðu maðurinn og kona hans beint til Getspár með miðann og voru mjög ánægð eins og vænta má og sögðust ekkert skilja í af hverju  þau hefðu unnið þennan stóra vinning – af hverju við?  Hjónin eru utan af landi og þegar vinningurinn var staðfestur hjá Getspá var ákveðið að gista ekki hjá fjölskyldumeðlimi í þessari borgarferð heldur fara á hótel og það flott hótel og fá sér flott að borða í kvöld og  konan var svo ánægð að hún sagði að þau gætu nú meira að segja í fyrsta skipti fengið sér að borða það sem hún vildi án þess að skoða verðið á matseðlinum,“ segir í tilkynningu Getspár.

Hjónin ætla að þiggja fjármálaráðgjöf og reikna með því að sleppa að taka lán fyrir nýja húsnæðinu sem þau voru að fjárfesta í. Síðan ætla þau að fá sér húsbíl sem þau geta boðið barnabörnunum með í ferðalag en hjónin eiga mörg börn og nokkur barnabörn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×