Takmarkanir á innflutningi brjóta gegn EES-samningnum Samúel Karl Ólason skrifar 14. september 2016 14:42 Takmarkanir á innflutningi á vörum úr eggjum og mjólk frá öðrum ríkjum evrópska efnahagssvæðisins er ekki í samræmi við EES-samninginn. Vísir/EPA/AFP
Takmarkanir á innflutningi á vörum úr eggjum og mjólk frá öðrum ríkjum evrópska efnahagssvæðisins er ekki í samræmi við EES-samninginn. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, komst að þeirri niðurstöðu í rökstuddu áliti sem sent var út í dag. Þar segir að takmarkanir sem þær og eru hér á landi geti valdið innflutningsaðilum erfiðleikum við að koma vörum sínum á markað. Samkvæmt tilkynningu frá eftirlitsstofnuninni segir að íslensk löggjöf feli í sér innflutningstakmarkanir á hráum eggjum og vörum úr þeim sem og ógerilsneyddri mjólk og mjólkurvörum. Innflytjendur verði að sækja um leyfi og leggja fram gögn til Matælastofnunar. ESA telur að þessar kröfur stangist á við tilskipun um eftilrlit með dýraheilbrigði. „Vörur úr eggjum og mjólk sem viðskipti eru með innan Evrópska efnahagsvæðisins lúta nákvæmum reglum um heilbrigðiseftirlit í framleiðsluríkinu. Eftirlit í viðtökuríki er hins vegar takmarkað við stikkprufur. Yfirgripsmikið regluverk ESB, sem er hluti af EES-samningnum, er sérstaklega hannað til að draga úr áhættu og minnka líkur á að sjúkdómsvaldar berist milli landa. Víðtækt kerfi varúðarráðstafana er við lýði ef hætta skapast á útbreiðslu sjúkdómsfaraldurs í EES-ríkjum,“ segir í tilkynningunni. EFTA-dómstóllinn hefur áður úrskurðað að sambærilegar kröfur íslenska ríkisins varðandi innflutning á hráu kjöti stangaðist á við áðurnefnda tilskipun og telur eftirlitsstofnunin að slíkt hið sama gildi um innflutning á vörum úr eggjum og mjólk. Hafi íslensk stjórnvöld ekki brugðist við áliti ESA er stofnuninni heimilt að vísa málinu til EFTA-dómstólsins.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Fleiri fréttir Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Sjá meira