Sveinbjörg Birna biður grunnskólabörn um myndir af skólamatnum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. september 2016 18:09 Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir. Vísir/Valli
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, óskar eftir því að grunnskólabörn taki ljósmyndir af hádegismatnum sem boðið er upp á í skólum þeirra. Hún segist hafa fengið á borð til sín margar kvartanir þess efnis að maturinn sé vart boðlegur, og ætlar að taka málið upp á borgarstjórnarfundi á þriðjudag. „Matarmál í grunn- og leikskólum hefur verið mjög til umræðu. Við ætlum að setja á dagskrá tillögu í tengslum við matarmálin og ég hefði gjarnan viljað safna myndum og setja upp slideshow á fundinum,“ segir Sveinbjörg í samtali við Vísi.Fullt tilefni til endurskoðunar Sveinbjörg segist hafa fengið kvartanir bæði frá foreldrum og börnum. Því sé fullt tilefni til þess að fara yfir þessi mál. „Það eru svo margir að kvarta undan þessu, börn og fullorðnir. Sjálf á ég fjögur börn í grunnskóla og þau hafa verið að tala um að maturinn sé vondur, grjónagrauturinn til dæmis útþynntur og lasagna bara með baunum. Þá veltir maður því líka fyrir sér hvort kennarar séu að fá sama mat og börnin,“ segir hún. Hún kallar jafnframt eftir upplýsingum um hvernig eftirliti með matarmálum í skólum sé háttað. „Við þurfum að fá að vita hvernig eftirliti er háttað til dæmis hvað varðar næringa- og hitaeiningagildi og að því sé framfylgt.“ Sveinbjörg hvetur grunnskólabörn og fullorðna til þess að senda sér ljósmyndir, fyrir næstkomandi þriðjudag, á Facebook eða í gegnum netfangið sveinbjorgbs@reykjavik.is.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira