Búið er að stofna sérstök hagsmunasamtök reykhúsa í lagarafurðum, en megintilgangur félagsins er að vinna að niðurfellingu tolla á reyktum lagarafurðum á erlenda markaði.
Í tilkynningu frá samtökunum segir að mikill ójöfnuður í samkeppni sambærilegra framleiðenda á EES svæðinu kalli á stofnun slíkra samtaka hér á Íslandi, þar sem nú sé 13 prósent tollur á reyktan lax sem fluttur er inn til ríkja á EES-svæðinu frá Íslandi. Hins vegar sé enginn tollur frá ESB til Íslands.
„Hrópandi ósamræmi í þessum málum er ástæða að stofnun samtakanna. Allt frá árinu 2007 hafa framleiðendur reyntað fá þessum málum hreyft en lítið sem ekkert áunnist í þessu máli við endurnýjun samninga við Evrópubandalagið,“ segir í tilkynningunni.
„Við fylkjum liði, og ætlum að fá þessu breytt“,er haft eftir Kristjáni Rafni Sigurðssyni, nýkjörnum formanni. „Mikill vöxtur á næstu árum kallar á aðgerðir í þessum málum strax. Um er að ræða háar upphæðir í virðisaukafyrir þjóðarbúið þegar hráefnið er fullunnið hér á landi við bestu skilyrði“.
Stofnfundaraðilar samtakanna eru Eðalfiskur, Egils Sjávarafurðir, Norðanfiskur,Opal Sjávarfang og Reykhúsið Reykhólar.
Vinna að niðurfellingu tolla á reyktum lagarafurðum
