Innlent

Yngri börn en áður á leikskólum í Hafnarfirði

Birta Svavarsdóttir skrifar
109 börn hefja aðlögun á leikskóla í Hafnarfirði nú í haust.
109 börn hefja aðlögun á leikskóla í Hafnarfirði nú í haust.
109 börn fædd í upphafi árs 2015 eru komin með pláss á leikskólum í Hafnarfirði og stendur aðlögun nú yfir. Aðgerðir sem miða að lækkun innritunaraldurs eru farnar að skila árangri og eru ný börn á leikskólum Hafnarfjarðar haustið 2016 yngri en áður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ í dag.

Innritun leikskólabarna á sér stað tvisvar sinnum á ári í Hafnarfirði, í ágúst og í febrúar. Innritun barna að hausti er iðulega umfangsmikil, en þá hefja elstu deildir leikskólanna nám í grunnskóla og stórir hópar barna hefja leikskólagöngu sína. 109 börn af 371 barni sem fædd eru árið 2015 eru nú komin með pláss á leikskóla í Hafnarfirði, en öll þessi börn eru fædd í upphafi árs 2015.

„Í febrúar 2017 munu svo börn fædd í apríl og maí 2015 hefja sína leikskólagöngu eftir því sem pláss leyfir. Haustið 2017 komast svo öll önnur börn fædd árið 2015 inn á leikskóla. Þessar aðgerðir eru í takt við ákvörðun fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar frá 1. júní 2015 sem samþykkt var hjá bæjarráði, í umboði bæjarstjórnar, þann 13. ágúst sama ár.

Þar kemur fram að stefnt sé að því að börn allt að 18 mánaða aldri innritist í leikskóla. Í einhverjum tilfellum eru börnin þó eldri þar sem innritun á sér stað einungis tvisvar sinnum yfir árið. Það er gert til að halda megi úti markvissu og góðu skólastarfi, þar sem börnin eru höfð í fyrirrúmi, í stað þess að fasi aðlögunar og innritunar sé að eiga sér stað oftar yfir árið með tilheyrandi áhrifum á skipulagt skólastarf. Til stendur að lækka innritunaraldur um einn mánuð ár hvert við innritun í ágúst. Hér er verið að stíga mikilvæg skref í átt að enn betri þjónustu við barnafjölskyldur í Hafnarfirði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×