Nýtt fiskveiðiár: Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 86,6% af aflamarkinu Birgir Olgeirsson skrifar 1. september 2016 18:23 Það skip sem fær úthlutað mestu aflamarki er Guðmundur í Nesi ER 13, en hann fær 8.324 þorskígildistonn eða 2,25% af úthlutuðum þorskígildum. Vísir
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 en það hófst í dag, 1. september. Að þessu sinni var úthlutað 369.925 tonnum í þorskígildum talið. Aukning á milli ára samsvarar um 1.530 þorskígildistonnum. Alls fá 504 skip úthlutað aflamarki að þessu sinni samanborið við 534 á fyrra fiskveiðiári. Það skip sem fær úthlutað mestu aflamarki er Guðmundur í Nesi ER 13, en hann fær 8.324 þorskígildistonn eða 2,25% af úthlutuðum þorskígildum. Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 86,6% af því aflamarki sem úthlutað er og er það álíka og í fyrra. Alls fá 398 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða um 20 aðilum færra en í fyrra. Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi, líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 10,3% af heildinni, næst kemur Samherji með 6% og þá Þorbjörn hf. með 5,5%. Þetta er sama röð efstu fyrirtækja og undanfarin ár. Þrjár heimahafnir skera sig úr eins og undanfarin ár með að skip sem þeim tilheyra fá töluvert mikið meira úthlutað í þorskígildum talið en þær hafnir sem á eftir koma. Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík eða 12,1% af heildinni samanborið við 12,4% í fyrra. Næst mest fer nú til Grindavíkur, eða 10,6% af heildinni sem er samdráttur um 0,8 prósentustig frá fyrra ári. Skip með heimahöfn í Vestmannaeyjum ráða fyrir 9,9% úthlutunarinnar eins og í fyrra. Um 1570 þorskígildistonnum er úthlutað nú í upphafi árs sem skel- og rækjubótum en það er svipað og í fyrra og fara þau til 30 báta samanborið við 32 báta á fyrra ári. Sjá nánar á vef Fiskistofu hér.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira