Miklar hliðstæður milli Íslands og Mars Una Sighvatsdóttir skrifar 8. september 2016 19:03
Mars er meðal mest könnuðu reikistjarna í sólkerfinu og undanfarinn áratug hefur þekking okkar á rauðu plánetunni fleygt fram. Þar á meðal hafa vel heppnaðir marsleiðangrar varpað ljósi á stóra jökla bæði á suður- og norðurpólnum og vitnisburði um jarðfræðifyrirbæri sem virðast eiga sér beinar hliðstæður við Ísland. Um þetta er fjallað á alþjóðlegri ráðsstefnu um heimskautasvæðin á Mars, sem fer nú fram við Háskóla Íslands. Meðal fyrirlesara er dr. Shane Byrne, lektor við háskólann í Arizona.Sandöldur á Mars eru gerðar úr basaltögnum rétt eins og á Íslandi. Þessi mynd sem tekin var af HiRISE myndavélinni sýnir sandöldur sem eru 1 km háar.NASA/JPL/University of ArizonaÓvíða hægt að rannsaka þetta betur en hér Dr. Byrne stýrir meðal annars rannsóknum á svo kallaðri HiRISE myndavél sem tekið hefur myndir frá sporbaug um Mars í samvinnuverkefni Arizonaháskóla við Nasa. Hann segir samanburðinn á yfirborði Mars og Íslands gefa gleggri hugmynd um hvað hafi átt sér stað á mars fyrir mörghundruð ármilljónum. „Það eru ísbreiðurnar, auðvitað, sem svipar til þeirra íslensku en einnig stór flóð eins og jökulhlaupin sem þið hafið hérna. Eldfjöllin eru líka hliðstæður eldfjallanna á mars. Það er mikið samspil á milli hrauns og íss á Mars eins og á Íslandi. Þetta er einn af fáum stöðum í heiminum þar sem hægt er að rannsaka þetta nákvæmlega."Íshellan á norðurpól Mars er um 1000 km breið og 2-3 km þykk.NASA/JPL/University of Arizona.Gervigígir greindir vegna þekkingar á Íslandi Dr. Byrne segir þó varasamt að draga of miklar ályktanir, fyrr en að því kemur að unnt verði að senda geimfara til mars. Enn sé ótalmargt á huldu en rannsóknirnar sýni að mun meiri hræringar séu á yfirborði Mars en áður var talið. „Skilningur á stöðum eins og Íslandi hjálpar mikið við túlkun gagnanna frá geimförunum. Gervigígarnir sem myndast á Íslandi, þegar hraun rennur yfir ís eða snjó, voru greindir á Mars bara af því að fólki var kunnugt um dæmin frá Íslandi og vissi á hvað það var vað horfa."Snjóflóð hafa meðal annars verið mynduð á mars. Þessi jökulklumpur sem HiRise myndaði við norðurpólinn er um 800 metra hár.NASA/JPL/University of Arizona.Miklar rannsóknir framundan Hann segir rannsóknir á mars sannarlega mjög spennandi svið enda eru framundan miklar áætlanir um frekari rannsóknarleiðangra þangað. „Mikilvægt markmið til skemmri tíma er að kanna plánetuna og einhvern tíma að senda menn til mars. Það er mjög hentugt fyrir geimfara að vita hvar ísinn er þegar þeir koma þangað, svo það er mikilvægt að rannsaka pólsvæðin og ísinn á mars út frá því sjónarhorni líka." Dr. Byrne flytur opið erindi um nýjust rannsóknir á Mars á Háskólatorgi í kvöld klukkan átta.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira