Reyndu að smygla 100 kílóum af kókaíni til Ástralíu með skemmtiferðaskipi og birtu myndir úr ferðinni á Instagram Birgir Olgeirsson skrifar 30. ágúst 2016 23:50 Melina Roberce og Isabelle Lagace sáttar með lífið á ferð sinni um heiminn áður en þær voru handteknar með 95 kíló af kókaíni í Ástralíu. Instagram
Þrír Kanadamenn, tvær konur og einn karl, eiga yfir höfði sér ævilanga dvöl í fangelsi í Ástralíu fyrir að reyna að smygla um 95 kílóum af kókaíni til landsins. Öll voru þau farþegar skemmtiferðaskipsins MS Sea Princess sem lagðist við bryggju í Sydney síðastliðinn sunnudag. Voru þau þrjú handtekin skömmu síðar eftir að kókaínið fannst í farangri þeirra. Um er að ræða hinn 63 ára gala Andre Tamine, 28 ára gömlu Isabelle Lagace og hina 22 ára gömlu Melina Roberce. Hafa þau verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 26. október næstkomandi. Verðmæti fíkniefnanna er talið nema um 30 milljónum dollara en fjölmiðlar ytra segir enga hafa gert tilraun til að flytja jafn mikið magn til Ástralíu með annað hvort skemmtiferðaskipi eða flugvél. Þau fóru um borð í skipið í Southampton í Bretlandi en lögreglan rannsakar hvort að þau voru með efnið á sér þá eða hvort þau fengu það á einhverjum af fjölmörgu stöðum sem skipið heimsótti á leið sinni til Ástralíu. Yfirvöld í Ástralíu þakka yfirvöldum í Bandaríkjunum og Kanada fyrir að gera þeim viðvart um grunsamlega hegðun þeirra þriggja, en þau voru á meðal 1.800 farþega skipsins. Það sem hefur einnig vakið athygli fjölmiðla ytra eru Instagram-reikningar kvennanna en þær voru iðnar við að birta myndir úr þessar tveggja mánaða ferð á samfélagsmiðlinum.
Tengdar fréttir Breyta framburði sínum í stóra Instagram-kókaín málinu Tveir kanadískir ríkisborgarar hafa játað að hafa reynt að smygla umtalsverðu magni kókaíns til Ástralíu með skemmtiferðaskipi árið 2016. 27. febrúar 2018 06:28 Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Innlent Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Innlent Bein útsending frá Hvalfirði Innlent Fleiri fréttir Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Friðarviðræður sagðar í uppnámi Sjá meira
Breyta framburði sínum í stóra Instagram-kókaín málinu Tveir kanadískir ríkisborgarar hafa játað að hafa reynt að smygla umtalsverðu magni kókaíns til Ástralíu með skemmtiferðaskipi árið 2016. 27. febrúar 2018 06:28