Innlent

Sérsveit lögreglu kölluð út í Hafnarfirði

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Lögreglan í Hafnarfirði og sérsveit voru kölluð til um klukkan hálf sex í kvöld eftir að hafa borist tilkynning um vopnaðan einstakling. Grunur var um að íbúinn hafi ætlað að valda sjálfum sér skaða.

Skotvopn fannst við leit í íbúðinni og var það fjarlægt. Maðurinn sýndi enga ógnandi tilburði við lögreglu eftir að hún kom á staðinn eða við neina aðra manneskju í húsinu.

Lögreglan var enn á staðnum um sex leytið til þess að ganga frá skýrslatöku og annað en segir að ástandið þar sé tryggt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×