Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Austurríki

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var fljótastur í dag.
Lewis Hamilton var fljótastur í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton var fljótastur á Mercedes í tímatökunni fyrir austurríska kappaksturinn. Annar varð Nico Rosberg og Nico Hulkenberg varð þriðji á Force India.

Brautin varð blaut á milli annarar og þriðju lotu baráttan í þriðju lotu varð því afar spennandi og Hamilton var fljótastur í lokin.

Rosberg og Vettel þurftu að skipta um gírkassa og færast aftur um fimm sæti á ráslínu eftir tímatökuna. Jenson Button ræsir því þriðji á McLaren á eftir Hulkenberg í keppninni á morgun.

Endurbyggja þurfti bíl Rosberg að miklu leyti eftir harkalegan árekstur við varnarvegg á æfingunni þegar fjöðrunin gaf sig.

Fjöðrunin brotnaði á bíl Sergio Perez í fyrstu lotu tímatökunnar. Hann var þó búinn að setja ágætan tíma þegar fjöðrunin bilaði.

Rosberg kom beint út úr bílskúrnum, hann var bara búinn að hita upp dekkinn og setti hraðasta tíma lotunnar á þeim tíma sem hann fór yfir línuna.

Rauðum flöggum var veifað þegar Daniil Kvyat braut fjöðrunina á Toro Rosso bílnum og skautaði stjórnlaust á varnarvegg. Nýju kantarnir á brautinni voru greinilega að valda vandræðum. Þá voru 104 sekúndur eftir á klukkunni í fyrstu lotu og örtröðin því mikil þegar tímatakan var endurræst.

„Ég veit ekki hvað gerðist. Þetta er skrýtið við höfum mikið að rannsaka. Mér finnst eins og fjöðrunin hafi brotnað á gagnstæðri hlið miðað við hvar ég var að fara yfir kantinn,“ sagði Kvyat eftir ap hann datt út með brotna fjöðrun.

Vélin í Toro Rosso bíl Carlos Sainz, gaf sig þegar tímatakan fór aftur í gang.

Sauber og Renault ökumennirnir duttu út í fyrstu lotu ásamt Kvyat og Rio Haryanto á Manor.

Brautin blotnaði afar hratt.Vísir/Getty
Margir reyndu að setja sinn hraðasta hring í annarri lotu á ofur-mjúku dekkjunum frekar en á últra-mjúku dekkjunum. Regnið hóf að falla af krafti undir lok annarrar lotu.

Fernando Alonso á McLaren og Pascal Wehrlein á Manor féllu út í annarri umferð ásamt Haas ökumönnunum.

Þriðja umferðin hófst á blautri braut og ökumenn fóru út á milli regn dekkjum.

Riginingin hætti að falla og spurningin virtist raunar bara hver yrði síðastur yfir línuna.

Hulkenberg á Force India setti fyrstur allra þurrdekk undir allir aðrir fylgdu svo í kjölfarið.

Sviftingarnar voru gríðarlegar þegar brautin hóf að þorna og tímarnir styttust með nánast hverjum einasta ökumanni sem kom yfir endamarkið.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport á morgun.

Hér að neðan má finna öll úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Rosberg: Ég verð hjá Mercedes í mörg ár í viðbót

Nico Rosberg hefur slökkt á umræðunni um að hann vilji fara frá Mercedes liðinu. Stirð samskipti við liðsfélaga sinn og gríðarlegur launamunur voru taldar ástæður þess að hann vildi fara. Svo virðist ekki vera.

Carlos Sainz hjá Toro Rosso út 2017

Carlos Sainz, ökumaður Toro Rosso verður áfram hjá liðinu samkvæmt Christian Horner, liðsstjóra Red Bull, sem er móðurlið Toro Rosso.

Rosberg fljótastur á báðum æfingum í Austurríki

Nico Rosberg hjá Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir Formúlu 1 keppnina í Austurríki sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, heimsmeistarinn Lewis Hamilton varð annar á báðum æfingunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×