Forsetacrapræður Stöðvar 2 Sverrir Stormsker skrifar 24. júní 2016 18:25 Þetta var sérkennilegur þáttur í allri uppsetningu. Myndavél og stólum var þannig uppstillt að sá sem sæti yst við gluggann myndi virka sem agnarsmátt dvergtötur. Davíð hreppti vitaskuld þann stól og kom út eins og hann hefði hlaupið í þvotti. Þarna sat Dabbi dvergur útí horni, kubbslegur og samþjappaður og minnti á hobbita. Oft hafa fjölmiðlar gert lítið úr Davíð en aldrei bókstaflega einsog þarna. Þetta er í eina skiptið sem þáttastjórnandi hefur tekið skýrt fram í upphafi þáttar að dregið hafi verið um hvar frambjóðendur myndu sitja. Við vitum alveg hvað svona „úrdráttur“ fjölmiðla þýðir. Guðni sat vitaskuld í miðjunni einsog venjulega í sínum hnésíðu reiðbuxum og köflóttu sportsokkum. Vegna stólauppstillingarinnar þá gnæfði hann eins og körfuboltasurtur yfir garðálfana, þá Andra og Davíð. Þegar Davíð flutti sín lokaorð og horfði landsföðurlega beint í myndavélina þá var passað uppá að ekki væri kveikt á þeirri vél heldur var sýnd hliðartaka af kallinum einsog hann væri að tala útí buskann eða við sjálfan sig. Þannig tókst að minnka áhrifin og láta kallinn líta út einsog hálf viðutan glóp.„Skítkast“ og „árásir“ Þetta voru auðvitað engar kappræður einsog auglýst var heldur ofur kurteislegar og settlegar crapræður. Dæmigert skandinavískt steingelt tesæmkvæmislegt piparjúnkufroðusnakk. Þarna vantaði illilega Ástþór og aðra frambjóðendur sem mældust undir 2,5% samkvæmt skoðanakönnun sama fjölmiðlungsmannafyrirtækis og hélt þennan fund. (Skrítið að Sturla skyldi hafa mælst með nákvæmlega tilskilinn prósentufjölda, 2,5% í þessari heimagerðu skoðanakönnun. Í síðasta þætti mældist Halla með nákvæmlega 2,5%. Alveg uppá hár. Hún komst því í þáttinn, enda “ekki við hæfi” að hafa bara karlpunga í settinu). Davíð reyndi á einum tímapunkti að fá smá fútt í þetta með því að anda nokkrum staðreyndum á Guðna, en slíkt er stranglega bannað og er kallað “skítkast” og “árásir” af skítkastssérfræðingum kommentakerfanna. Guðni svaraði þessu „skítkasti“ nánast engu og hélt áfram að þylja uppúr frasabókinni sinni einsog ekkert hefði í skorist um að forsetanum bæri að „standa utan flokka og fylkinga“ (með kratahelming Sjálfstæðisflokksins á bak við sig) og ætti að vera félagshyggjumaður og frjálshyggjumaður i senn og bæði svartur og hvítur og pólitískur og ópólitískur og reyna þannig að geðjast hverjum einasta manni sem „sameiningartákn“ þessarar ósameinanlegu þjóðar. Og svo ætti hann jú að vera djúpt þenkjandi en jafnframt „alltaf í góðu skapi“ og allt það. Ég þuldi þessa ræðu sekúntubroti á undan honum því ég er farinn að kunna hana utanað einsog hann.Andri, Halla og Sturla Andri Snæri er hugmyndaríkur hugsjónamaður. Hann var fínn í settinu og túlkaði orð sín jafnharðan á táknmáli fyrir vin sinn Bubba Morthens, sem er víst lítillega heyrnarlaus. Handahreyfingar Andra Snæs voru tilþrifamiklar að vonum. Honum hefur sjaldan tekist betur upp. Af þessum sökum slökkti ég oft á hljóðinu þegar hann var að tala og reyndi að ímynda mér af handasveiflunum að ráða hvað hann væri að tala um. Eða hvaða sinfoníuhljómsveit hann væri að stjórna. Ég veit hann er mikill náttúruverndarsinni og þykir obboslega vænt um hverskyns fjöll og fossa. Kjósum Andra sem fossseta. Halla er klár kelling. Það er víst ekki vel liðið að nota þetta orð svo ég skal umorða þetta: Halla er snjöll kelling. Hún sagði í þættinum: „Þetta er ekki búið fyrr en feita konan syngur. Og ég get alveg staðið undir því.“ Halla ætlar semsé að taka lagið aðfaranótt sunnudags og það verður gaman að sjá hvernig henni tekst upp. Ég vissi að Halla væri hæfileikarík en ekki vissi ég að hún væri söngkona. Sturla var flottur. Hann vill meina að stjórnarskráin sé skrifuð á skiljanlegri íslensku og hana þurfi ekki að túlka sundur og saman af einhverjum fræðingum. Það eina sem þurfi að gera sé að taka orðin í henni á orðinu og þá gæti hann sem forseti ráðið ráðherra og rekið þá að vild eftir því hvernig skapi hann væri. Og ef hann væri illa fyrir kallaður þá gæti hann rekið alla heilu helvítis ríkisstjórnina á einu bretti og sagt henni að fara til fjandans. Í staðinn gæti hann svo skipað einhverja skemmtilega vörubílstjóra og fjallhressa drykkjufélaga sína sem ráðherra ef hann kærði sig um. Sieg Heil! Heil Sturla! Veit ekki hvort þetta virki í praxís þar sem hér er hvorki forsetaræði né einræði heldur þingræði, flokksræði og glæpræði. Sturla er fylginn sér og það beygir hann enginn. Það virðist enginn kunna það. Sturla beygist á eftirfarandi hátt: Sturla um Sturlu frá Sturlu til Sturlu. Flókið? Maður segir ekki: „Ég ætla að kjósa Sturla“ heldur: „Ég ætla að kjósa Sturlu.“Forseti fjölmiðlungsmanna En við ættum náttúrulega að kjósa Ástþór. Skrítið að enginn frambjóðendanna í settinu hafi staðið upp og mótmælt því að þeir frambjóðendur sem neðarlega mældust í 365-könnuninni skyldu lokaðir úti, t.d. friðflytjandinn Ástþór. Þegar Ástþór er úti þá er friðurinn úti. Fjölmiðlungsmenn hafa skrumskælt lýðræðið og byrjað á öfugum enda og í rauninni fokkað upp þessum forsetakosningum. Í stað þess að byrja á að kynna frambjóðendur rækilega í sjónvarpi og gera síðan skoðanakannanir þá byrjuðu þeir á að dæla út heimatilbúnum skoðanakönnunum þegar frambjóðendur voru svo gott sem ókynntir og völdu síðan úr þá sem hæst mældust og tóku að kynna þá. Hver óbrjálaður maður hlýtur að sjá ómælisheimskuna, amatörmennskuna og lýðræðisbeyglunina sem í þessu felst. Næsti forseti verður semsé í boði góða fólksins á RÚV og 365. Og hver skyldi sá góði maður nú vera? Okkur Íslendingum virðist ætla að ganga erfiðlega að halda kosningar sem ekki eru í skötulíki. Við munum hvernig fór fyrir stjórnlagaráðskosningunum. Að þessu sinni er utankjörfundaratkvæðagreiðslan í forsetakosningunum í fokki. Endanlegur listi frambjóðenda lá ekki fyrir þegar atkvæðagreiðsla hófst. Nú er bara að vona að kosningunum verði frestað eða þær flautaðar af enda kolólöglega staðið að þeim einsog svo mörgu öðru hér á landi hvað lýðræðinu viðvíkur. Kosningaeftirlit ÖSE ætti að vera hér með fasta búsetu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson Skoðun Minni sóun, meiri verðmæti Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Tími formanns Afstöðu liðinn Ólafur Ágúst Hraundal Skoðun Hvar á ég heima? Aðgengi fólks með POTS að heilbrigðisþjónustu Hugrún Vignisdóttir Skoðun Grímulaus aðför að landsbyggðinni Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Hróplegt óréttlæti í lífeyrismálum Finnbjörn A. Hermansson Skoðun „Við getum ekki": Þrjú orð sem svíkja börn á hverjum degi Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Hvað veit Hafró um verndun hafsvæða? Kjartan Páll Sveinsson Skoðun Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason Skoðun Lærum af reynslunni Hlöðver Skúli Hákonarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað veit Hafró um verndun hafsvæða? Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun Ógnar stjórnleysi á landamærunum íslensku samfélagi? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grímulaus aðför að landsbyggðinni Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Menningarstríð í borginni Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Málfrelsið Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Austurland lykilhlekkur í varnarmálum Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Áhyggjur af fyrirhugaðri sameiningu Hljóðbókasafns Íslands Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Fjárfesting í færni Maj-Britt Hjördís Briem skrifar Skoðun Hvar á ég heima? Aðgengi fólks með POTS að heilbrigðisþjónustu Hugrún Vignisdóttir skrifar Skoðun Lærum af reynslunni Hlöðver Skúli Hákonarson skrifar Skoðun Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason skrifar Skoðun „Við getum ekki": Þrjú orð sem svíkja börn á hverjum degi Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Hróplegt óréttlæti í lífeyrismálum Finnbjörn A. Hermansson skrifar Skoðun Tími formanns Afstöðu liðinn Ólafur Ágúst Hraundal skrifar Skoðun Þögnin sem mótar umræðuna Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Minni sóun, meiri verðmæti Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskennd tiltekt Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Konukot Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvers vegna ekki bókun 35? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslendingar – rolluþjóð með framtíð í hampi Sigríður Ævarsdóttir skrifar Skoðun Við hvað erum við hrædd? Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson skrifar Skoðun Höfuðborgin eftir fimmtíu ár, hvað erum við að tala um? Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar Skoðun Einn pakki á dag Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hörmungarnar sem heimurinn hunsar Ragnar Schram skrifar Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð ríka samfélagsins Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar Sjá meira
Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason Skoðun
Skoðun Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason skrifar
Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar
Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason Skoðun