Innlent

Kraftaverkalyf sem ekki má ofnota

Birta Björnsdóttir skrifar
Ný skýrsla um sýklalyfjaónæmi í heiminum og framtíðarspá í þeim efnum hefur vakið mikla athygli. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að verði ekkert að gert fjölgi þeim sem deyja á ári hverju í heiminum sökum ónæmis fyrir sýklalyfjum úr 700.000 í 10 milljónir árið 2050. Það jafngildir dauðsfalli á þriggja sekúntna fresti allt árið.

„Það sem er auðvitað mjög ógnvekjandi við þessa skýrslu eru þær tölur sem þarna koma fram," segir prófessor Karl G. Kristinsson, yfirlæknir sýklafræðideildar Landspítalans

„Niðurstöðurnar koma ekki á óvart því við erum búin að vara við sýklalyfjaónæmi í áratugi og þá helst læknar, vísindamenn og heilbrigðisyfirvöld. Það sem er nýtt er að þessi skýrsla er sett á laggirnar af forsætisráðherrra Breta, David Cameron, árið 2014 og fyrir vinnunni fer hagfræðingur og hann hefur til liðs við sig endurskoðunarfyrirtæki svo hún er meira talnaleg en fyrri samantektir um málið," segir Karl.

„Þetta er afar sláandi, og þessvegna mælumst við eindregið til þess að í gang fari alheims herferð til að vekja máls á þessu. Það er aðeins lítill hluti jarðarbúa sem gerir sér grein fyrir að það sé til nokkuð sem nefnist sýklalyfjaónæmi,“ sagði Jim O´Neill, hagfræðingur og einn höfunda skýrslunnar.

Karl segir vinnu þegar hafna hér á landi til að reyna að stemma stigu við óhóflegri notkun sýklalyfja. Væntanlegum starfshópi sé til að mynda ætlað að koma á bættri notkun á sýklalyfjum innan heilsugæslunnar.

„Við höfum vonandi einhvern tíma til stefnu en það er mikilvægt að bregðast við strax eins og við höfum margsinnis sagt,“ segir hann.

„Sýklalyf voru kölluð kraftaverkalyf á sínum tíma vegna þess að þau læknuðu sýkingar sem voru og eru lífshættulegar ef þær eru ekki meðhöndlaðar. Við viljum halda í þessi lyf og nota þau þegar þeirra er virkilega þörf. Vandinn er hinsvegar sá að við erum að nota þau allt of oft þegar þeirra er ekki þörf."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×